Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar 13. apríl 2026 11:30 Það var blaut tuska framan í sveitarstjórnarmenn á Austurlandi, og í raun landsbyggðina alla, þegar innviðaráðherra taldi sig ekki bundinn af samþykktri samgönguáætlun, og þeirri miklu vinnu sem þar lá að baki, og þar með um útboð Fjarðarheiðarganga. Það er vissulega svo að þriðja stjórnsýslustigið á Íslandi, landshlutasamtök, hafa ekki sama lögformlega vægið eins og á hinum norðurlöndunum og þar með ekki ákvörðunarvald um útdeilingu fjármagns eins og þar er. Hinsvegar hefur það þótt góð stjórnsýsla og vönduð vinnubrögð að taka mark á ályktunum þessarra samtaka og sveitarfélaga sem að þeim standa. Samgöngumál eru þau mál sem vega langþyngst í þróun byggðar og landssvæða. Það eru unnar ákveðnar tillögur í samgönguáætlun, og jafnan reynt að ná samkomulagi milli landshluta um hvaða forgangsröðun skuli vera á þeim. Virðing alþingis – orð skulu standa. Það er dapurlegt að nýr innviðaráðherra skuli allt í einu ekki telja sig bundinn af þeirri miklu vinnu, né af loforðum fyrri þinga, og gera þar með lítið úr alþingi, sveitarstjórnarfólki og íbúum austurlands með jafn ruddalegum hætti. Um 65% þjóðarinnar búa á höfuðborgarsvæðinu, og allt að 80% á áhrifasvæði þess, en samt ekki á nema um 1,8 % af stærð landsins. Samt hefur verið talið eðlilegt að höfuðborgarsvæðið hafi nær fullan þingmannafjölda miðað við þetta ójafnvægi. Það hefur verið vegna þess að landsmenn hafa treyst ríkisstjórn og ráðherrum, að þeir hafi heildarhagsmuni landsins alls í huga við stjórnvaldsákvarðanir, en ekki að þröngir sérhagsmunir eða hentistefna ráði för hverju sinni. Þó einhverjir gleðjist yfir því nú að þeir séu settir framfyrir í breytingum Eyjólfs þá er bara tímaspursmál þar til þeir hinir sömu verða settir afturfyrir, meðan landsbyggðin er háð duttlungum ráðherra á hverjum tíma. Ný stjórnskipan ? Það hefur stundum verið horft til fylkjaskipunar í Noregi varðandi stjórnskipan landsins. Með fylkjaskipan yrði hægt að flytja stærstan hluta samgöngumála, svæðisbundinna skipulagsmála, grunn heilbrigðismála, framhaldsskóla og byggðaþróunarmála til fylkjanna. Þetta þýddi að skattheimtunni yrði snúið við og innheimtir skattar myndu renna til fylkjanna og ríkið gera kröfu í fjárlögum til rekstrar sameiginlega þátta, s.s. í rekstur landspítala og annarra stofnana ríkisins. Þetta þýddi auðvitað að rekstur ríkisins yrði mun sýnilegri og þá sæist hve mikið rekstur þess kostar í raun, þar gæti komið ýmislegt merkilegt í ljós. Sem málamiðlun mætti gefa sveitarfélögum, og/eða landshlutasamtökum, kost á eigin útboðum stærri verka og að ríkið myndi svo kaupa þau til baka á x-tíma. Misvægi atkvæða – fólksfjöldi eða stærð. Það er svo að allar tekjur af virðisaukaskatti, tekjuskatti fyrirtækja, olíugjöldum, kílómetragjöldum, helmingur af tekjuskatti einstaklinga, og svo má lengi telja, fara til ríkisins og því eru völd þeirra sem fara með fjárveitingavaldið mikil. Ef þessi stjórnsýsla, sem innviðaráðherra viðhafði, er það sem koma skal er full ástæða fyrir austurland að taka málin í sínar hendur. Þar er ég að tala um að skoða í fullri alvöru hvort eðlilegt hlutfall fjármagns og þjónustu hafi skilað sér til fjórðungsins á undanförnum 2-3 áratugum. Skýrslur hafa verið gerðar um annað eins, en um framhaldið skal svo ósagt hér. Evrópusambandið. Það að ganga í Evrópusambandið er eingöngu útvíkkun á þessum úthlutunarkomplexum alþingis- og embættismanna, sem þá geta unnið við að ná til baka einhverju af því mikla fjármagni sem rynni til ESB, og úthluta svo pökkum til landsmanna eins og góðhjartaðir jólasveinar vottaðir með CE stöðlum. Nota bene jólagjöfum sem við sjálf höfum greitt dýru verði með peningaframlögum, framsali auðlinda og sjálfsákvörðunarrétti um eigin framtíð. Ég er ekki að tala um róttækari aðgerðir að sinni, en einn gárungi benti mér á að byrja mætti á að sprengja brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Það er þó sennilega óþarfi, hún er hvort sem er að hruni komin. Kannski meira síðar, kveðja, Sigurður Ragnarsson framkvæmdastjóri, Egilsstöðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar