Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar 13. apríl 2026 11:00 Borgarbyggð er á krossgötum. Hér liggja saman leiðir milli Vesturlands, Suðurlands og Norðurlands, og gegnir sveitarfélagið lykilhlutverki í því hvernig ferðamenn, íbúar og atvinnulíf ferðast um landið. Þess vegna skiptir uppbygging vegarins um Uxahryggi og áframhaldandi lagfæring Kaldadalsvegar sköpum, ekki bara fyrir Borgarbyggð, heldur fyrir ferðaþjónustu og samgöngur á Íslandi í heild. Í dag eru þessir vegir að stórum hluta malarvegir sem ekki uppfylla kröfur nútímans um öryggi og aðgengi. Uxahryggjavegur er skilgreindur sem fjallvegur og er ekki haldið opnum yfir vetrartíma, og Kaldadalsvegur er aðeins fær hluta ársins. Þetta takmarkar nýtingu svæðisins, dregur úr öryggi og kemur í veg fyrir að möguleikar Borgarbyggðar og Vesturlands nýtist til fulls. Nýjar hringleiðir – meiri gæði, minni álag Uppbygging á Uxahryggjavegi er langt komin, með því að klára uppbyggingu hans og gera nauðsynlegar lagfæringar á Kaldadalsvegi að Húsafelli skapast nýjar og afar áhugaverðar hringleiðir frá höfuðborgarsvæðinu. Þessar leiðir eru sérstaklega hentugar fyrir dagsferðir ferðamanna og tengja saman fjölda af þekktum og eftirsóttum áfangastöðum: Þingvelli, Langjökul, Víðgelmi, Húsafell, Hraunfossa, Reykholt, Deildartunguhver og Grábrók, áður en ferðin heldur áfram um Borgarnes, Hvanneyri og víðar um Vesturland. Slíkar hringleiðir skipta miklu máli. Þær auka afþreyingu sem stendur ferðamönnum til boða, stuðla að betri dreifingu ferðamanna, minnka álag á vinsælustu leiðir landsins og skapa forsendur fyrir lengri dvöl. Er það ekki það sem íslensk ferðaþjónusta þarf á að halda í dag? Auka aðgengi, fjölga áhugaverðum stöðum, létta álagi og auka gæði í upplifun og nýtingu innviða. Beinn ávinningur fyrir Borgarbyggð Ávinningur Borgarbyggðar er augljós. Betri vegir þýða meira öryggi, aukið aðgengi og ný tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila, bæði þá sem nú þegar starfa í sveitarfélaginu og þá sem vilja hefja starfsemi. Uppbygging þessara vega styrkir einnig atvinnulíf utan ferðaþjónustu svo sem þjónustu, flutninga og auðga daglegt líf íbúa. Borgarbyggð verður með þessum hætti ekki aðeins viðkomustaður, heldur miðpunktur í ferðum um landið. Það breytir stöðu sveitarfélagsins til framtíðar og styður við jákvæða byggðaþróun. Öryggi og heilsársþjónusta skipta máli Samgöngur snúast ekki aðeins um styttingu vegalengda heldur fyrst og fremst um öryggi og fyrirsjáanleika. Markmið með uppbyggingu Uxahryggjavegar er m.a. að skapa forsendur fyrir því að halda veginum opnum yfir vetrarmánuðina. Það skiptir íbúa, atvinnulíf og gesti landsins miklu máli. Heilsársopnun og bætt færð gera ferðaþjónustunni kleift að byggja upp stöðugri rekstur, lengja tímabilið og skapa meiri verðmæti. Ákall um forgangsröðun Vegabætur á Uxahryggjum og Kaldadal eru ekki munaðarverkefni. Þær eru lykilinnviðir sem tengja saman landshluta, dreifa umferð, auka öryggi og skapa verðmæti. Að ráðast ekki í slíkar framkvæmdir þýðir að tækifærin fara fram hjá okkur – fyrir Borgarbyggð og fyrir landið allt. Sem íbúi og frambjóðandi í Borgarbyggð tel ég brýnt að við sameinumst um að berjast fyrir því að þessum framkvæmdum verði flýtt. Þetta er fjárfesting sem skilar sér margfalt í öryggi, atvinnu, styrkingu ferðaþjónustunnar og sterkari byggð. Borgarbyggð á að vera í miðjunni – ekki til hliðar. Höfundur skipar fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Borgarbyggð og Skorradalshrepp. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar