X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir skrifar 13. apríl 2026 08:33 Þreytandi ásælni Ásælni í arðbærar opinberar eigur er orðin þreytandi fyrir margt löngu. Sumt á hreinlega að vera almanna eign. Við þurfum að vernda samfélagslega mikilvæg fyrirtæki og innviði fyrir yfirgangi og yfirtöku einkageirans. Þessi fyrirtæki og innviðir hafa verið byggðir upp af nokkrum kynslóðum með erfiði, samstarfi og samstöðu. Við í Okkar Borg erum með það skýrt í okkar stefnu að selja hvorki né einkavæða mikilvæga innviði og fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, t.d. bílastæði, bílastæðahús, Orkuveituna og dótturfyrirtæki hennar, svo eitthvað sé nefnt. Þegar „hagræðing“ skilar auknum útgjöldum Kannast ekki allir við möntruna sem kemur alltaf úr sömu áttum - hið opinbera á ekki að standa í samkeppni eða hið opinbera á ekki að standa í áhætturekstri og síðast en ekki síst að nota eigi söluverðið til að greiða niður skuldir? Þetta kemur undantekningalaust frá þeim sem gjarnan vilja komast yfir þær mjólkurkýr og gullgæsir sem eru í eigu hins opinbera. Einhvern veginn fer lítið fyrir hagræðingunni af þessu: Hið opinbera skuldar ekki minna og sífellt eykst vandinn við að reka t.d. skóla- og heilbrigðiskerfi. Getum við ekki verið sammála um að eftir einkavæðingu arðbærra opinberra eigna þá rennur arðurinn að mestu í vasa fárra? Hefur ekki líka sýnt sig að þegar á móti blæs þá má þjóðin eiga tapið? Þegar hagnaður af arðbærum opinberum fyrirtækjum hættir að renna til samfélagsins þar sem hann er notaður til þess að snúa hinu gríðarlega mikilvæga hjóli velferðarinnar þá hækka skattar og gjöld. Þær hækkanir skipta þá sem eignast hafa mjólkurkýrnar og gullgæsirnar engu máli: Þá munar ekkert um tugi, hundruð þúsunda eða jafnvel milljónir í aukin persónuleg útgjöld árlega, það er bara brotabrot af nýfengnum gróðanum. Samfélagið finnur hins vegar heldur betur fyrir stórauknum vanda sem óumflýjanlega fylgir svona gjörningum: Enda eru þeir ekki gerðir með hagsmuni borgaranna að leiðarljósi heldur fárra útvalinna. Okkar Borg – varðmenn samfélagslegra eigna Reykvíkinga! Við í Okkar Borg teljum hiklaust að mjólkurkýr og gullgæsir í eigu borgarinnar eigi að vera það áfram. Við munum berjast fyrir því að svo verði – með oddi og egg. Sumt er nauðsynlegt og skylt að við eigum saman. Það er góð og sönn hægrimennska. Við í Okkar Borg ætlum að vera varðmenn samfélagslegra eigna Reykvíkinga. X-Reykjavík - Okkar Borg í Ráðhúsið – XR Höfundur skipar sæti á framboðslista X-R, Okkar Borg í sveitarstjórnarkosningum 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar