Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 16:01 Kobbie Mainoo og félagar í Manchester United geta styrkt stöðu sína í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Leeds United á Old Trafford í kvöld. getty/Ash Donelon Bráðabirgðaþjálfari Manchester United, Michael Carrick, vonast til að Kobbie Mainoo skrifi undir nýjan samning við félagið.
Mainoo hefur spilað alla leiki United eftir að Carrick tók við liðinu og er kominn aftur í enska landsliðið. Hinn tvítugi Mainoo fékk afar fá tækifæri undir stjórn Rubens Amorim og byrjaði ekki leik í ensku úrvalsdeildinni meðan Portúgalinn stýrði Rauðu djöflunum á þessu tímabili. Mainoo skrifaði undir núgildandi samning sinn við United eftir að hann vann sér sæti í aðalliðinu 2023. Nú er vonast til að hann framlengi samning sinn við United til 2031. „Þetta nálgast svo við erum bjartsýnir,“ sagði Carrick, á blaðamannafundi fyrir leik United gegn Leeds United, um mögulegan nýjan samning Mainoos. „Tíminn leiðir í ljós hvað gerist en við erum rólegir og í augnablikinu erum við á góðum stað.“ Fyrri deildarleikurinn gegn Leeds reyndist vera síðasti leikur Amorims með United. Hann gagnrýndi hæstráðendur félagsins harðlega eftir 1-1 jafntefli á Elland Road 4. janúar og var í kjölfarið látinn taka pokann sinn. Darren Fletcher stýrði United í tveimur leikjum áður en Carrick var ráðinn. Rauðu djöflarnir hafa unnið sjö af tíu leikjum undir hans stjórn, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum leik. Leikur Manchester United og Leeds United hefst klukkan 19:00 í kvöld og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn „Þetta gekk eins og í sögu“ Íslenski boltinn Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Enski boltinn Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Íslenski boltinn „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Sjá meira