EM-sæti í húfi: „Mjög spennt að sjá hvar við stöndum núna“ Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 11:30 Það er allt undir hjá Elínu Rósu Magnúsdóttur og liðsfélögum hennar í íslenska landsliðinu í dag. Sæti á EM er í húfi. vísir/Anton Elín Rósa Magnúsdóttir er vitaskuld spennt fyrir úrslitaleiknum við Portúgal á Ásvöllum í dag, um sæti á EM í handbolta. Ekki bara spennt fyrir því að Ísland komist á fjórða stórmótið í röð heldur að sjá hvaða skref liðið hefur tekið frá tapinu gegn Portúgölum í haust.
Ísland tapaði 26-25 fyrir Portúgal í október, hefur einnig tapað tvisvar fyrir Færeyjum og einu sinni gegn Svartfjallalandi. Eini sigurinn í undankeppninni, í hinum leiknum gegn Svartfellingum, gerir hins vegar að verkum að liðið getur með sigri í dag náð 3. sæti riðilsins af Portúgal og komist á EM. Elín Rósa segir margt hafa farið úrskeiðis í tapinu gegn Færeyjum síðasta miðvikudag en nú snýst allt um úrslitaleikinn við Portúgal. Klippa: Elín Rósa fyrir úrslitaleikinn við Portúgal „Þetta snýst um að vera á þessari uppleið sem við vorum, þó að þessi leikur [við Færeyjar] hafi verið eitthvað allt annað. Við höfum verið með sterkan stíganda og okkur langar að fylgja því áfram,“ sagði Elín Rósa í viðtali við Val Pál Eiríksson í aðdraganda leiksins. Eins og fyrr segir tapaði Ísland gegn Portúgal og Færeyjum í fyrstu leikjum undankeppninnar í haust, áður en liðið fór svo á HM í desember og stóð sig vel. „Þá vorum við kannski með svolítið nýtt lið og ég held að við séum búnar að taka skref fram á við síðan þá. Ég er mjög spennt að sjá hvar við stöndum núna og við ætlum okkur að vinna þennan leik, í fullri höll,“ sagði Elín Rósa. „Við ætlum samt fyrst og fremst að fókusa á frammistöðu. Ef við gerum það, sýnum frammistöðu, þá hef ég mikla trú á að við náum að klára þennan leik.“
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Tengdar fréttir Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Ísland mætir Portúgal á Ásvöllum klukkan 16 í dag í hreinum úrslitaleik um það að komast á Evrópumót kvenna í handbolta í desember. Arnar Pétursson segir búið að rýna í það sem miður fór í Færeyjum og nú verði allt lagt í sölurnar. 12. apríl 2026 07:00 Margt sem þarf að laga Elín Klara Þorkelsdóttir segir sannarlega margt mega laga í leik íslenska kvennalandsliðsins eftir tap fyrir Færeyjum ytra í vikunni. Liðið á fyrir höndum úrslitaleik um EM-sæti við Portúgal að Ásvöllum á morgun. 11. apríl 2026 16:47 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira
Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Ísland mætir Portúgal á Ásvöllum klukkan 16 í dag í hreinum úrslitaleik um það að komast á Evrópumót kvenna í handbolta í desember. Arnar Pétursson segir búið að rýna í það sem miður fór í Færeyjum og nú verði allt lagt í sölurnar. 12. apríl 2026 07:00
Margt sem þarf að laga Elín Klara Þorkelsdóttir segir sannarlega margt mega laga í leik íslenska kvennalandsliðsins eftir tap fyrir Færeyjum ytra í vikunni. Liðið á fyrir höndum úrslitaleik um EM-sæti við Portúgal að Ásvöllum á morgun. 11. apríl 2026 16:47