Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 11. apríl 2026 12:53 Sólveig Anna segir að aðgerðir á borð við leiguþak eða leigubremsu hefðu skilað meiri árangri en þær aðgerðir sem ríkisstjórnin boðaði í gær. Vísir/Arnar Formaður Eflingar lýsir yfir vonbrigðum með nýkynntar efnahagsaðgerðir stjórnvalda sem taki ekki á raunverulegum vanda heimilanna. Hún telur ólíklegt að aðgerðirnar dugi til að kjarasamningar haldi í haust og sakar stjórnvöld um samráðsleysi.
Í kvöldfréttum Sýnar í gær sagði hagfræðingur Íslandsbanka að nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar virtust sérsniðnar utan um forsenduákvæði kjarasamninga. Áhrifin væru tímabundin og líklegt að verðbólga minnki fyrst lítillega en aukist á nýjan leik í byrjun september sem sé skömmu eftir að forsenduákvæði kjarasamninga komi til endurskoðunar. Engin leigubremsa Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður eflingar lýsir yfir vonbrigðum með aðgerðirnar og telur þær ekki til þess fallnar að skila árangri. „Ég held að þetta muni ekki hafa nægilega mikil áhrif til að koma í veg fyrir að forsenduákvæði kjarasamninga virkist. Það er enn verið að tala um að hér verði haldið áfram í vaxtalækkunarferlinu og það eru auðvitað aðrir þættir sem hafa verulega mikil áhrif á verðbólguna en bara eldsneytið þannig ég sé það ekki fyrir mér. En það sem ég veit að myndi hafa mjög mikil áhrif hratt og örugglega og myndi bæta lífskjör eflingarfólks, verkafólks á höfuðborgarsvæðinu, sem er meira og minna fast á leigumarkaði - það er leigubremsa. Það er undarlegt að stjórnvöld séu ekki í fullri alvöru að hugleiða þau skref.“ Þá segir hún aðgerðirnar ekki taka á raunverulegum vanda fólks. „Og er einmitt mögulega bara til þess gerð til að reyna að forða því að kjarasamningarnir falli úr gildi næsta haust en tekur ekki á neinu raunverulegu vandamáli.“ Þannig þú heldur að þrátt fyrir þessar aðgerðir séu kjarasamningar í hættu í haust? „Ég held að staðan sé þannig núna að þetta muni ekki hafa nægileg áhrif.“ Undarleg aðferðarfræði Þá sakar hún stjórnvöld um samráðsleysi. „Ég bara undra mig á þessari aðferðarfræði. Það hefði verið betra, skynsamlegra og eðlilegra að ef það fólk sem gerði kjarasamningana sem hér um ræðir sem eru Efling og félagar okkar í breiðfylkingunni, hefðu verið þau sem voru kölluð að borðinu til að útfæra málin með eðlilegum og skynsamlegum hætti og það er undarlegt að það hafi ekki verið gert.“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Kjaramál Verðlag Tengdar fréttir „Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands. Þessi fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Atvinnustefnunni fylgir einnig aðgerðaáætlun sem nær til áranna 2026 – 2027 þar sem settar eru fram 35 aðgerðir til að stuðla að markvissri innleiðingu stefnunnar. Forsætisráðherra segir um tímamót að ræða. 10. apríl 2026 11:49 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira
„Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands. Þessi fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Atvinnustefnunni fylgir einnig aðgerðaáætlun sem nær til áranna 2026 – 2027 þar sem settar eru fram 35 aðgerðir til að stuðla að markvissri innleiðingu stefnunnar. Forsætisráðherra segir um tímamót að ræða. 10. apríl 2026 11:49