Málefni eldra fólks Björn Snæbjörnsson skrifar 9. apríl 2026 09:46 Landssamband eldri borgara leggur ríka áherslu á að félög eldri borgara um allt land láti rödd sína heyrast, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mikilvægt er að málefni eldra fólks séu sýnileg í kosningabaráttunni og að framboð í hverju sveitarfélagi geri skýra grein fyrir stefnu sinni í málum sem snerta líf og velferð eldra fólks. Sambandið hvetur aðildarfélög sín til að vera virk í umræðunni, koma sínum helstu áherslum og tillögum á framfæri við frambjóðendur og minna á þau málefni sem skipta eldra fólk mestu máli. Með því að taka virkan þátt í samfélagsumræðunni geta félög eldri borgara haft raunveruleg áhrif á stefnumótun sveitarfélaga til framtíðar. Landssamband eldri borgara hvetur félögin til að kalla eftir opnum fundum með öllum framboðum í sínu sveitarfélagi. Slíkir sameiginlegir fundir skapa mikilvægan vettvang þar sem frambjóðendur geta kynnt stefnu sína og svarað spurningum beint. Á sama tíma gefst eldra fólki tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og leggja áherslu á þau mál sem það telur brýnust. Með auknu samtali, samvinnu og virkri þátttöku er hægt að tryggja að málefni eldra fólks fái þann sess sem þau eiga skilið í stefnumótun sveitarfélaga. Eldra fólk eru stór og mikilvægur hluti samfélagsins og hafa bæði reynslu og þekkingu sem nýtist vel við uppbyggingu mannvænlegra sveitarfélaga til framtíðar. Sveitarstjórnarkosningar snúast fyrst og fremst um lífsgæði fólks í nærumhverfi sínu. Fyrir eldra fólk skipta ákvarðanir sveitarfélaga sérstaklega miklu máli, enda hafa þau víðtæk áhrif á þjónustu, húsnæðismál, félagslíf og ýmis gjöld sem snerta daglegt líf. Því er eðlilegt að spurt sé , hvað ætla framboðin um allt land að gera fyrir eldra fólk? Íslenskt samfélag er að eldast hratt. Hlutfall eldra fólks fer vaxandi á næstu árum og áratugum og því er brýnt að sveitarfélög móti skýra stefnu í málefnum þessa hóps. Hann er fjölbreyttur með mismunandi þarfir og aðstæður, en margir eiga það sameiginlegt að vilja búa áfram í eigin samfélagi, vera virkir þátttakendur í félagslífi og búa við öryggi í húsnæðis- og þjónustumálum. Félög eldri borgara gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og hafa mikla þekkingu á stöðu og þörfum hópsins. Þau geta verið öflugur samstarfsaðili þegar kemur að því að móta þjónustu, skipuleggja félagsstarf og leggja til úrbætur. Með markvissu og reglulegu samráði við félögin geta sveitarfélög tekið betri ákvarðanir og tryggt að raddir eldra fólks heyrist. Mikilvægur vettvangur fyrir slíkt samráð eru Öldungaráðin sem eru lögbundin. Þar eiga að sitja þrír fulltrúar sveitafélaganna, þrír frá félagi eldri borgara og einn frá heilsugæslu. Öldungaráð eiga að fjalla um málefni eldra fólks í samráði við sveitarstjórnir. Þrátt fyrir þessa lagaskyldu eru enn nokkur sveitarfélög sem hafa ekki komið slíkum ráðum á fót eða sinna þeim ekki sem skildi. Það er krafa Landssambands eldri borgara að eftir kosningar muni öll sveitarfélög sinna þessu lögboðna verkefni sínu. Öldungaráð geta gegnt lykilhlutverki við að greina þarfir eldra fólks, fylgjast með þróun þjónustu og koma með tillögur að úrbótum. Fjárhagsleg staða margra eldri borgara er viðkvæmt mál. Þótt sumir búi við góðan lífeyri eru margir sem hafa takmarkaðar tekjur. Ein leiðin til að koma á móts við þann hóp er að veita tekjulágum enn frekari afslátt af fasteignagjöldum en nú er gert. Þessi afsláttur er í dag mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Einnig mætti auka lífsgæði þessa hóps með því að veita þeim frístundastyrk, svipað og tíðkast fyrir börn og ungmenni. Með slíkum stuðningi gætu fleiri tekið þátt í líkamsrækt, menningarstarfi eða öðru félagsstarfi. Virkt félagslíf og hreyfing hafa jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan og geta dregið úr einangrun og einmanaleika. Húsnæðismál eru annað stórt viðfangsefni. Víða vantar hagkvæmt og aðgengilegt húsnæði fyrir eldra fólk sem vill minnka við sig eða flytja í hentugri íbúðir. Sveitarfélög geta lagt sitt af mörkum með því að tryggja nægar lóðir fyrir óhagnaðardrifin húsnæðisfélög sem byggja íbúðir á viðráðanlegu verði. Slík uppbygging getur stuðlað að auknu öryggi og betri lífsgæðum fyrir eldra fólk. Mikilvægt er að sveitarfélög haldi verðlagi á þjónustu í skefjum. Gjöld fyrir ýmsa þjónustu sem eldra fólk nýtir, svo sem heimaþjónustu, félagsstarf eða aðra velferðarþjónustu, geta fljótt orðið þung byrði ef þau hækka mikið. Markmiðið ætti að vera að tryggja að eldra fólk hafi raunhæfan aðgang að þeirri þjónustu sem það þarf á að halda. Sveitarstjórnarkosningar eru mikilvægt tækifæri til að ræða þessi mál af festu og ábyrgð. Eldra fólk er stór og vaxandi hópur í samfélaginu og hafa lagt sitt af mörkum til uppbyggingar þess. Það er því sjálfsagt að framboð um allt land setji málefni þeirra í skýran forgang. Með auknu samráði, markvissum aðgerðum og framsýnni stefnu er hægt að skapa samfélag þar sem fólk getur notið efri áranna með reisn, við öryggi og góð lífsgæði. Höfundur er formaður Landssambands eldri borgara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Snæbjörnsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Sjá meira
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun