Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 07:30 Aflaunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson með íslenska fánann á einu af mörgum mótum sínum á ferlinum. Getty/Dave Kotinsky/ Íslenski aflaunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson er að undirbúa sig fyrir afar viðburðarríkt vor þar sem hann hefur sett stefnuna á að setja fleiri en eitt heimsmet.
Hafþór hafði fyrir löngu gefið það út að hann ætlaði að keppa á Steraleikunum í Las Vegas 24. maí næstkomandi þar sem stefnan hefur verið sett á heimsmet í réttstöðulyftu, met sem hann hefur bætt nokkrum sinnum á síðustu árum. Það er hins vegar ekki eina heimsmetið sem Hafþór ætlar sér að bæta í vor. Aflaunamótið Swaglift Day í Liberec í Tékklandi auglýsir mótið með því að segja að íslenska fjallið ætli að vera með í ár. Mótið fer fram 30. maí eða aðeins sex dögum eftir að Hafþór Júlíus keppir í sýningargrein á Steraleikunum hinum megin við Atlantshafið. View this post on Instagram A post shared by SWAGLIFT (@swagliftcom) Á Steraleikunum ætlar Hafþór að bæta heimsmetið í einstæðri réttstöðulyftu en tæpri viku síðar ætlar hann sér nýtt heimsmet í endurtekinni réttstöðulyftu, „deadlift for reps“ eins og það er kallað á enskri tungu. Í Tékklandi ætlar Hafþór að fara upp með 400 kíló oft og mörgum sinnum en í Las Vegas er stefnan sett að fara upp með meira en 510 kíló í einni réttstöðulyftu sem er heimsmet hans sjálfs frá því í fyrra. „Þór er heimsþekkt goðsögn, bókstaflegt fjall bæði í íþróttum og afþreyingu og við erum himinlifandi með að hann taki þátt í leikunum,“ sagði Maxmillian Martin, forstjóri Steraleikanna, þegar þátttaka Hafþórs var staðfest. „Það eru mjög fáir – ef einhverjir – á þessari plánetu sem jafnast á við hreinan styrk Þórs og þá sjón sem aðeins hann getur skapað fyrir áhorfendur um allan heim,“ sagði Martin. Hafþór er 37 ára gamall og ekki aðeins afreksmaður í kraftakeppnum heldur heimsfrægur leikari þökk sé leik sínum í Game of Thrones-þáttunum en þar túlkaði hann Ser Gregor „Fjallinu“ Clegane í hinum margverðlaunuðu HBO-þáttum. Á heimsmeistaramótinu í réttstöðulyftu 2025 í Birmingham á Englandi lyfti Hafþór 510 kílóum og sló þar með heimsmetið í réttstöðulyftu, en hann bætti þar eigið met upp á 505 kíló og varð fyrsti og eini maðurinn í sögunni til að lyfta meira en 500 kílóum þrisvar sinnum. Hafþór er einnig eini maðurinn sem hefur náð hinni eftirsóttu þreföldu kórónu í kraftakeppnum, en hann sigraði í keppnunum Sterkasti maður heims (WSM), Arnold Strongman Classic (ASC) og Sterkasti maður Evrópu (ESM) á sama árinu (2018). Það verður mikið álag á Hafþóri í næsta mánuði en hann hefur leyft fylgjendum sínum að fylgjast með undirbúningi sínum á samfélagsmiðlum eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson)
Aflraunir Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Stúkan: FH í miklum vandræðum Elín Klara sænskur meistari Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira