Erlent

Dregur í land með því skil­yrði að Hormússund sé opnað

Eiður Þór Árnason skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist fallast á miðlunartillögu Pakistans sem felur í sér tveggja vikna vopnahlé í Íran, með því skilyrði að stjórnvöld þar séu tilbúin að hleypa skipum óáreittum í gegnum Hormússund á ný. 

Í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í kvöld sagði Trump að ef Íran gæti samþykkt „ALGJÖRA, TAFARLAUSA og ÖRUGGA OPNUN HORMÚSSUNDS“ og þá myndi hann „fresta sprengjuárásum og árásum á Íran í tvær vikur.“ 

Trump hafði hótað öllu illu ef ekki yrði gengið að kröfum hans fyrir miðnætti að íslenskum tíma. 

Trump segir Íran hafa lagt fram „framkvæmanlega“ tíu punkta friðaráætlun sem gæti hjálpað til við að binda enda á stríðið. Íran hafi lagt fram „framkvæmanlegan grundvöll til samningaviðræðna.“ AP-fréttaveitan greinir frá þessu.

Trump segist hafa samþykkt tillögu Pakistans, sem kveður á um tveggja vikna vopnahlé og tafarlausa opnun Hormússunds. Á næstu tveimur vikum muni Bandaríkin vinna að því að ganga frá samkomulagi við Íran, að sögn Trumps.

„Ástæðan fyrir því er sú að við höfum þegar náð og farið fram úr öllum hernaðarlegum markmiðum og erum komin mjög langt með endanlegt samkomulag um langtíma FRIÐ við Íran og FRIÐ í Miðausturlöndum,“ skrifaði hann í samfélagsmiðlafærslu. „Við fengum 10 punkta tillögu frá Íran og teljum hana raunhæfan grundvöll til samningaviðræðna.“

Trump segir að Íranir hafi lagt fram tíu punkta tillögur sem geti verið grunnur að frekari viðræðum. Athygli vekur að þjóðaröryggisráð Íran segir hins vegar að Trump hafi samþykkt tíu kröfur klerkastjórnarinnar.

New York Times greinir frá því að Íran hafi samþykkt tveggja vikna vopnahléstillögu Pakistans í kjölfar örvæntingarfullra diplómatískra tilrauna Pakistans og íhlutunar bandalagsríkis þeirra Kína á síðustu stundu, þar sem Íran var beðið um að sýna sveigjanleika og draga úr spennu. Gerðist þetta innan um vaxandi áhyggjur af efnahagslegri eyðileggingu vegna skemmda á mikilvægum innviðum, að sögn þriggja íranskra embættismanna. Þeir sögðu að vopnahléið hefði verið samþykkt af Ayatollah Mojtaba Khamenei, nýja æðsta leiðtoga Íran.

New York Times segir jafnframt að í tíu punkta tillögu Írans sé meðal annars gert ráð fyrir að öllum viðskiptaþvingunum sem allar ríkisstjórnir Bandaríkjanna hafa sett á Íran verði aflétt frá og með stjórnartíð George W. Bush. Óljóst sé hvort Vesturlönd vilji gefa eftir þetta öfluga efnahagslega tól áður en þau fá fram stórar tilslakanir varðandi kjarnorkuáætlun Írans, eldflaugar þeirra og kúgun stjórnarandstæðinga.

Frá því að stríðið hófst í febrúar hefur Trump sett fram ýmsa fresti þar sem hann hótar að herða átökin en dregið svo í land rétt áður en þeir renna út.

Hótanir Trumps náðu nýjum hæðum fyrr í dag þegar hann sagði: „Heil siðmenning mun deyja í nótt, og verður aldrei endurreist,“ ef Íran myndi ekki að gera samning sem felur í sér opnun Hormússunds á ný.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×