Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar 7. apríl 2026 11:02 Ferli leyfisveitinga vegna nýrra virkjana er komið í óefni og full ástæða til að fagna því að nú skuli loks stigin markviss skref til úrbóta. Allt of flókið og tímafrekt ferli er engum til góða, það hefur þvert á móti neikvæð áhrif á framþróun og atvinnuuppbyggingu. Við Íslendingar höfum í gegnum aldirnar nýtt náttúruna okkur til hagsbóta. Við njótum þeirra forréttinda að hafa nýtt okkur vatnsafl og jarðvarma til orkuvinnslu og erum því minna háð jarðefnaeldsneyti en flestar aðrar þjóðir. Við höfum unnið að uppbyggingu orkuinnviða í gegnum tíðina með virðingu fyrir náttúru landsins að leiðarljósi, vandað til verka þannig að eftir er tekið samhliða því að stuðla að öflugu atvinnulífi víða um land og þeim lífsgæðum sem við njótum hér á landi. Í áranna rás hefur mótast regluverk sem skilgreinir hvaða kröfur eru gerðar til framkvæmda og atvinnustarfsemi, meðal annars til að vernda þau gæði sem felast í náttúru landsins og tryggja aðkomu almennings. Ferli leyfisveitinga vegna orkuvinnslu hefur hins vegar verið í ólestri, sem hefur leitt til þess að undirbúningur nýrra virkjana hefur tekið mun lengri tíma en eðlilegt ætti að teljast. Leyfisveitingaferli nýrra virkjana er grundvallarþáttur í uppbyggingu orkukerfisins. Ferlið á að tryggja vönduð vinnubrögð og gefa hagsmunaaðilum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. En ferlið er orðið mjög flókið og svifaseint og til þess fallið að stuðla að óþarfa töfum. Þrátt fyrir gagnrýni á flækjustigið legg ég áherslu á að skýrt og réttlátt ferli leyfisveitinga er mjög mikilvægt. Ég tel að hægt sé að ná fram sama árangri með minni fyrirhöfn og á styttri tíma. Í stað þess að fara í gegnum 10 til 12 skref til að fá leyfi fyrir nýrri virkjun væri hægt að fækka skrefunum verulega án þess að veita afslátt af efnislegri meðferð eða samráði. Þetta væri hagræðing fyrir framkvæmdaraðila, stjórnsýsluna og almenning. Hægagangur í leyfisveitingum hefur víðtæk áhrif. Þetta hefur áhrif á framboð raforku, sem aftur getur haft áhrif á orkuskipti, atvinnuuppbyggingu og raforkuöryggi, sérstaklega þegar vatnsár eru erfið, og þar með lífskjör í landinu. Virkjanir eru ómissandi innviðir og brýnir almannahagsmunir að uppbygging þeirra virkjana sem samþykktar hafa verið gangi vel fyrir sig. Birtir til með auknum skilningi En nú birtir til enda hafa stjórnvöld sýnt mikinn skilning á nauðsyn þess að einfalda og skýra allt ferlið. Stofnanir hafa verið sameinaðar og löggjöf breytt til að stuðla að aukinni skilvirkni og fyrirsjáanleika fyrir alla þátttakendur í ferlinu. Ég tel að vel hafi tekist til þar sem ekki hefur verið gengið á þátttökurétt almennings, hvergi slakað á kröfum til frammistöðu í umhverfismálum eða slakað á kröfum um upplýsingagjöf eða vönduð vinnubrögð. Breytingar á löggjöf lofa góðu. Í tilfelli vatnsaflsvirkjana er nú hægt að sameina fjögur leyfi í eitt sem verður þá ígildi virkjanaleyfis, starfsleyfis, heimildar vegna breytinga á vatnshlotum og leyfi frá Fiskistofu. Hér er ekki verið að gefa neina afslætti frá þeim kröfum sem gerðar eru til framkvæmdaraðila eða draga úr möguleikum almennings til að koma að ferlinu. Þvert á móti tel ég að með þessum breytingum sé verið að bæta þjónustu við báða aðila með því að vera með einn afgreiðslustað sem ætti að einfalda öllum að fylgjast með framvindu verkefna og nálgast gögn máls. Hér er þó aðeins verið að samþætta hluta leyfisveitingaferlisins, en áfram verða margir afgreiðslustaðir og leyfisveitendur svo enn er verk að vinna. Breytt löggjöf skili strax betra verklagi Fjöldi kærumála hefur að miklu leyti snúist um málsmeðferð samkvæmt lögum um stjórn vatnamála og formgalla þeim tengt. Það er því vel að lög um stjórn vatnamála hafa verið uppfærð til að eyða óvissu um að það megi virkja vatnsafl á Íslandi og ákvæði sett um áhrifamat vatnsholta í lög um umhverfismat, svo eitthvað sé nefnt. Hér er þó enn verk að vinna því áfram halda kærumálin þar sem látið er reyna á innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins. Ég hlakka til að sjá næstu virkjun fara í gegnum uppfært leyfisveitingaferli og hvernig það mun reynast í að fækka óþarfa töfum og stytta undirbúningstímann, vonandi um 1-2 ár (úr 5 árum eftir að virkjun er komin í orkunýtingarflokk). Það er mikilvægt að framkvæmdaraðilar og leyfisveitendur uppfæri verklag að nýrri löggjöf. Þar vil ég sérstaklega hvetja viðkomandi stofnanir til að veita góðar og aðgengilegar leiðbeiningar til að tryggja að ferlið gangi vel fyrir sig, að öll sem vilja taka þátt hafi tækifæri til þess og umfram allt að vandað sé til verka. Eitt er að breyta lögum og reglum, annað að hrinda þeim breytingum örugglega í framkvæmd. Mikilvægt er að vel takist til við innleiðingu til að væntur árangur náist. Bætt skilvirkni og aukinn fyrirsjáanleiki ætti að vera til bóta fyrir okkur öll sem komum að leyfisveitingaferli virkjana, kröfur um frammistöðu í umhverfismálum verða óbreyttar og öll hafa rödd víða í ferlinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Landsvirkjun Jóna Bjarnadóttir Mest lesið Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir Skoðun