Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 4. apríl 2026 12:31 Íslendingar standa frammi fyrir mjög mikilvægu vali: Viljum við halda áfram að kanna aðild að Evrópusambandið – eða loka á þann möguleika áður en þjóðin fær að taka upplýsta ákvörðun? Hér eru sex skýr rök fyrir því að segja já í ágúst: 1. Lýðræðið krefst þess að þjóðin fái að velja Það er grundvallaratriði að almenningur – ekki sérhagsmunir eða áhrifafólk – ráði því hvort viðræður halda áfram. Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um að ganga í ESB heldur um að halda áfram viðræðum. Að segja nei er að hafna því að afla frekari upplýsinga áður en endanleg ákvörðun er tekin. Stóra lýðræðislega ákvörðunin kemur síðar – (ef) þegar þjóðin fær að kjósa um fyrirliggjandi samning. 2. Ísland hefur alltaf getað gert „tvennt í einu“ Forstjórar hafa bent á að ekki sé rétti tíminn til að fara í viðræður. En saga Íslands sýnir að stórar ákvarðanir eru teknar samhliða efnahagslegum áskorunum: aðild að NATO, EFTA og EES voru allar ákveðnar á erfiðum tímum. Rök um að fresta eigi ákvörðunum vegna ástandsins standast ekki. 3. Efnahagslegt öryggi í óstöðugum heimi Alþjóðaviðskipti eru að breytast hratt. Tollastríð og verndarstefna aukast. Aðild að tollabandalagi Evrópusambandið myndi veita Íslandi mikilvægt skjól sem við höfum ekki í dag. Sumir halda því fram að EES sé nægjanleg og varanleg lausn. Það er rangt. Formlega séð getur bæði Ísland og Evrópusambandið sagt samningnum upp með 12 mánaða fyrirvara. Þótt það sé ólíklegt í dag, þá er kjarninn sá að staða Íslands byggir á samningi sem við stjórnum ekki. Raunveruleikinn er þessi: Við tökum upp reglur sem við eigum ekki beina aðild að. Við höfum engin atkvæði þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og framtíð samningsins ræðst af hagsmunum annarra. Í efnahagslegum þrengingum forgangsraðar Evrópusambandið sínum eigin hagsmunum – ekki íslenskum. Það er ekki stöðugleiki. Það er óvissa. 4. Krónan er veikur grundvöllur stöðugleika – og kostar milljarða Reynslan er óyggjandi – íslenska krónan er viðkvæm og krefst hárra vaxta og hafta. Ef aðeins er tekinn kostnaður af 3% hærri vöxtum á Íslandi en hjá ESB ríkjum til lengri tíma, má varlega áætla árlegan kostnað: Heimili: um 80–120 milljarðar kr. Fyrirtæki: um 70–110 milljarðar kr. Ríkið: um 20–40 milljarðar kr. Samtals: 170–270 milljarðar kr. á ári Kjör almennings og samkeppnisstaða Íslands er verri en hún þyrfti að vera. Það eru því slæm rök að hafna aðild vegna þess að við séu svo rík núna. 5. Öryggismál snúast ekki bara um hernað Nútímaógnir eru netárásir, efnahagslegir þrýstingar og upplýsingaóreiða. Þar gegnir Evrópusambandið sífellt stærra hlutverki – samhliða NATO. 6. JÁ núna er ekki það sama og aðild að ESB Að segja já í ágúst þýðir ekki skuldbindingu um aðild – heldur að halda dyrunum opnum. Að segja nei lokar möguleikum áður en full mynd af samningi liggur fyrir. Hvers vegna hefur fylgið við ESB samninginn aukist eftir inngöngu hjá Dönum, Svíum og Finnum? Niðurstaða Í kjarna málsins snýst þetta ekki um ESB eitt og sér – heldur um hvernig við sjáum Ísland til framtíðar: Þjóð sem lokar á valkosti af ótta og vantrausti Eða þjóð sem skoðar, metur og tekur upplýsta ákvörðun. Reynir þannig að tryggja enn betur sjálfstæði sitt og efnahagslegt öryggi. Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst er tækifæri til að velja lýðræðislega. Segjum JÁ við viðræðum – JÁ við upplýstri ákvörðun. Höfundur viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun