Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar 2. apríl 2026 17:02 Fyrir svo sem hálfri öld, þegar ég var krakki, var föstudagurinn langi virkilega langur og leiðinlegur dagur. Þetta var á tímum þegar það var bara ein útvarpsstöð á Íslandi, RÚV og mig minnir að á þessum degi hafi verið útvarpað þögn í bland við hátíðlega þögn, fram eftir degi. Það mátti ekki spila. Það mátti ekki leika sér og það var ekkert í sjónvarpinu nema stillimynd. Maður sat í sparifötunum og beið þess að dagurinn liði. Eldra fólk minnti mann svo á það reglulega að við ættum að nota daginn til að hugleiða kvöl og pínu Krists. Þótt föstudagurinn langi snúist um kvöl og pínu á krossinum, þá má ekki gleyma því að saga Jesú frá Nasaret er líka saga barns sem þurfti að leggja á flótta. Samkvæmt ritningunni neyddust María og Jósef til að flýja heimaland sitt til Egyptalands undan ofsóknum Heródesar konungs. Þau voru flóttafólk í leit að öryggi í ókunnu landi, réttlaus og upp á náð og miskunn annarra komin. Þau eru fólk sem kerfið bregst. Fólk sem hrekst undan harðstjórn. Fólk sem hefur ekki eigin örlög í hendi sér. Á sömu svæðum og píslarsagan átti sér stað, eru nú milljónir manna á flótta. Það sem áður var bakgrunnur í biblíusögum sunnudagaskólans er í dag vettvangur blóðugra átaka, þjóðarmorðs, þar sem fjölskyldur þurfa að taka sömu ákvörðun og María og Jósef: að yfirgefa allt. Ef María, Jósef og ungbarnið Jesús kæmu að landamærahliðinu við Rafah í dag, myndu þau mæta allt öðrum veruleika en þeim sem lýst er í fornum textum. Þau myndu mæta háum múrum, gaddavír og flóknum stjórnsýslulegum hindrunum. Í dag eru landamæri ekki bara landfræðileg skil heldur stafrænar síur og pólitísk tæki. Án vegabréfa eða vegabréfsáritana væri þeim líklega vísað frá eða þau látin bíða mánuðum saman í yfirfullum flóttamannabúðum við óviðunandi aðstæður. Stjórnsýsla nútímans hefur byggt upp kerfi sem á að tryggja reglu, en stundum á kostnað mannúðar. Í dag yrðu María og Jósef flokkuð sem „hælisleitendur“ og sögur þeirra vegnar og metnar af sérfræðingum sem starfa innanna kerfis sem virðist við fyrst og aðra sýn hannað til að halda fólki frá löndum frekar en að hleypa því inn. Kvöl og pína Krists á krossinum á sér þannig beina framlengingu í þeirri þjáningu sem fylgir því að vera lokaður úti af hinu opinbera kerfi. Hálfri öld eftir að ég sat í sparifötunum og hlustaði á þögn, safna fáeinar hugsjónakonur nokkru fé og nota það til að múta (mögulega hefur ekki verið staðfest) landamæravörðum í Egiftalandi til að koma konum og börnum á flótta, frá átakasvæðum og í hendur alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar, IOM, sem svo kemur fólkinu til Íslands. Þessar aðgerðir fárra hugsjónakvenna afhjúpa ákveðna þversögn í nútíma stjórnsýslu: Þar sem hið opinbera kerfi lamast eða lokast vegna pólitískrar tregðu, þarf stundum óhefðbundnar og jafnvel vafasamar aðferðir til að tryggja grundvallarmannúð. Með því að grípa til þess ráðs að múta landamæravörðum hafa þessar konur búið til eins konar „neyðarútgang“ úr ógöngum sem alþjóðasamfélagið virðist ófært um að leysa með formlegum leiðum. Þegar fólkið er komið í hendur Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM), breytist staða þeirra úr því að vera réttlausir flóttamenn í að vera hluti af skipulögðu ferli sem endar á Íslandi. Þegar litið er til baka til þessa litla drengs sem sat hljóður í stífpressuðum sparifötum og beið þess að föstudagurinn langi liði og hversdagurinn með leikjum og ærslum tæki við má sjá ákveðna samsvörun með honum og þjóðinni. Í helgri kyrrð bjó og lifði þjóð sem ræktaði þá sjálfsmynd að hún væri á siðferðislega háu stigi. Að hér væri samfélag þar sem hjálpsemi var sjálfgefin og fjarlægum neyðarköllum yrði svarað með samhljóða „já“. Á þessum tíma var hugtakið „hælisleitandaiðnaður“ ekki til í okkar orðabók og heimsmálin voru aðeins daufar fréttir í einu útvarpsstöðinni. En á hálfri öld hefur margt breyst. Ég klæði mig ekki lengur í spariföt á föstudeginum langa og ætti ég bolta myndi ég sparka í hann. Þjóðin hefur eins og ég líka breyst. Hún hefur líka farið úr sparifötunum og lætur sig kvöl og pínu og hátíðleika litlu varða. Eftir því sem flóttafólki hefur fjölgað og stjórnsýslan í kringum málaflokkinn orðið flóknari og mögulega vélrænni, hefur tónninn í samfélaginu harðnað til muna. Sá saklausi náungakærleikur sem við þóttumst rækta í þögninni og fásinninu hefur smám saman vikið fyrir vaxandi tortryggni í garð ókunnugra og kerfislægri vörn. Það sem áður var kristileg skylda til að hjálpa þeim sem minna mega sín er nú of oft dregið í efa og mætt með tortryggni frekar en opnum örmum. Í dag sjáum við skýr merki þess að hluti þjóðarinnar hafi snúist gegn fólki á flótta. Þetta birtist ekki síst í harðri aðför að sjálfboðaliðum Solaris sem tóku málin í eigin hendur. Þessar konur, sem notuðu eigið fé og lögðu líf og heilsu í hættu til að koma börnum úr helgreipum átaka, mæta ekki lofi heldur rannsóknum og andúð. Þær eru sakaðar um að grafa undan kerfinu eða stunda smygl, á meðan þær eru í raun að fylla upp í það siðferðislega tómarúm sem opinber stjórnsýsla hefur búið til. Þær eru konur sem þora. Andstaðan er orðin kerfislæg. Það sem áður var talið hetjudáð – að bjarga barni undan harðstjórn eða bráðum dauða – er nú tortryggt og rannsakað sem lögbrot. Þessi breyting sýnir að við höfum færst frá því að vera þjóð sem hugleiðir þjáningu Krists í sparifötum, yfir í að vera samfélag í snjáðum joggingöllum sem hugar frekar að því að styrkja landamæravörslu og koma upp móttökubúðum, en mannúð. Þegar sjálfboðaliðar eru gerðir að skotmörkum, er það skýrt merki um að við höfum glatað tengslunum við okkar eigin menningar um náungakærleika. Höfundur er félagsráðgjafi og stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórhallur Guðmundsson Mest lesið Halldór 06.06.26. Halldór Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Skoðun Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun