„Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 31. mars 2026 12:01 Bill Murray spáði fyrir um velgengni Laufeyjar. Getty/Sean Gallup/Vilhelm/Vísir „Ég held að Bill Murray sé spámaður,“ segir stórstjarnan Laufey Lín en hún var viðmælandi í hlaðvarpi breska fjölmiðlamannsins Louis Theroux sem var að mæta á streymisveitur í dag. Þar ræddi hún meðal annars um ferilinn, mikilvægi listsköpunar og óvæntan vinskap við ástsæla leikarann Bill Murray.
Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með velgengni Laufeyjar um allan heim undanfarin ár og ógleymanlegt hvernig hún söng sig inn í hjörtu tugþúsunda Íslendinga með tvennum troðfullum tónleikum í Kórnum fyrr í mánuðnum. Louis Theroux er vinsæll fjölmiðlamaður sem framleiddi umdeildu heimildarmyndina Inside the Manosphere þar sem hann tekur fyrir samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Heilluð af hlutum sem taka tíma Hann heldur sömuleiðis úti vinsælu hlaðvarpi þar sem hann ræðir við alls kyns fólk og fékk íslensku tónlistargyðjuna til sín í spjall. „Ég held að það sé ekki gott að kenna ungu listafólki að það sé einungis hin fljótlega, auðvelda eða einfalda list sem nái árangri í dag. Mér finnst það algjörlega röng nálgun og hún er þveröfug við það sem ég ólst upp við sem er klassíska tónlistin,“ segir Laufey í umræðu um hraðann og gervigreindina í listheiminum í dag. View this post on Instagram A post shared by Louis Theroux (@officiallouistheroux) „Ég er svo heilluð af hlutum sem taka langan tíma. Hæg list sem krefst þess af okkur að við tökum okkur tíma til að skilja. Við erum svo háð því að finna strax gildið í einhverju og ýta því frá okkur ef við náum því ekki strax.“ Hún segir að sér finnist jákvætt að skilja ekki eitthvað. „Í dag er hægt að semja lag á nokkrum sekúndum með gervigreind. En mér finnst öll góð list sem stenst tímans tönn vera sú list sem krefst margra ára undirbúnings. Ég get skrifað lag á tuttugu mínútum en á bak við það eru yfir tuttugu ár af tónlistarnámi og tilveru á jörðinni. Þess vegna elska ég að fara og sjá ballett eða klassíska tónlist. Hún krefst þess af þér að þú hægir aðeins á þér. Stundum leiðist þér kannski smá eða þú verður ringluð á einhverju og það er gott. Ég held það sé gott stundum að skilja ekki eitthvað.“ Heldur að Murray sé spámaður Talið barst sömuleiðis að vinskap hennar og Bill Murray en þau unnu meðal annars að tónlistarmyndbandi við útgáfu hennar á jólalaginu Santa Baby árið 2024. „Hann er mikill vinur minn í dag, segir Laufey og bætir við að þau hafi kynnst hér á Íslandi. Hann kom til Íslands með tríóinu sínu fyrir tónleika. Ég man að hann kom upp að mér og sagði: Þú munt verða stórkostleg söngkona.“ Laufey segist hafa sagt honum fyrir að hún væri söngkona og hana minnir að einhver í kringum hana hafi sýnt Murray myndband af Laufeyju syngja. „Ég held hann sé spámaður. Ég hef trúað því innilega frá því við hittumst þarna. Hann dró mig til hliðar og sagði: Þú ert sterk, kraftmikil kona og þú munt verða stórkostleg söngkona.“ Hér má hlusta á viðtalið í heild sinni.
Laufey Lín Tónlist Hollywood Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið