Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Aron Guðmundsson skrifar 30. mars 2026 19:46 Tiger Woods hefur séð betri daga Vísir/getty Paul McGinley, atvinnukylfingur og fyrrverandi fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum á ekki von á því að Tiger Woods mæti til leiks á komandi Mastersmóti í golfi. Woods olli sínu fjórða bílslysi á ferlinum á dögunum og er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum.
Woods er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum lyfja þegar hann reyndi að taka fram úr öðrum ökumanni í Flórída með þeim afleiðingum að þeir rákust saman. Bíll Woods endaði á hlið og var hann síðar handtekinn á vettvangi. Þetta var í fjórða sinn sem Tiger Woods veldur bílslysi en hin þrjú slysin hafa sett mikið mark á líf hans og feril sem atvinnumanns í golfi. Atvikið á sér stað nú þegar stutt er í Mastersmótið í golfi, eitt af risamótum hvers árs í íþróttinni og hefur Woods keppnisrétt á mótinu sem fyrrverandi meistari. Meiðsli hafa plagað Woods á seinni árum hans sigursæla ferils og hafði hann gefið því undir fótinn að mæta til leiks á komandi Mastersmóti en eftir uppákomu helgarinnar virðist það nær ógerlegt. „Ég myndi telja það. Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti,“ svaraði McGinley í samtali við Sky Sports. Hann yrði hissa ef Woods tæki þátt á komandi Mastersmóti aðspurður um það hvort líkurnar væru litlar á þátttöku Woods. „Hann á stærri verkefni fyrir höndum heldur en það hvort hann spili á Masters eða ekki. Algjöra endurskoðun á því hvernig hann hagar sínu lífi.“ Tiger hefur fimm sinnum staðið uppi sem sigurvegari á Mastersmótinu. Síðast árið 2019.
Masters-mótið Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira