Útvistun, Minna gott, meira vont Halldór Ólafsson skrifar 27. mars 2026 10:33 Það er ekkert leyndarmál að útvistun og einkavæðing er stór hluti af stefnu nýfrjálshyggjuflokka sem hafa nú setið við stjórnvölin síðastliðin ár, bæði í sveitar-, borgar- og í ríkisstjórn. Það að svokallaður jafnaðarflokkurinn samfylkingarinnar ráði nú för í borginni og í ríkisstjórn ætti að gefa manni von um breytingar, en í verki hefur sá flokkur ekki skilað neinu af sér nema áframhaldandi á einkavæðingarstefnunni. Sósíalistar standa gegn þessari stefnu og þessum tilraunum stjórnvalda til að veikja opinbera innviði. En afhverju stöndum við sósíalistar gegn þessu? Mig langar að svara því. Það er fyrst og fremst vegna þess að við hötum einkaframtakið og elskum bákn. Sjálfstæðismenn hafa rétt fyrir sér, við viljum að þú, kæri lesandi hafir minna á milli handanna, þannig ríkið verði rosa sterkt. Áróðurinn er sannur, við viljum meira vont og minna gott! Djók. Það eru raunverulegar ástæður afhverju við stöndum gegn þessu. Sennilega fleiri en ég mun geta talið upp hér, en ég tek samt nokkur dæmi. Skattfé almennings á ekki að fara í að borga fyrir lífstíl fjármagnseigenda. Allt einkaframtak sem fær fjármagn frá ríkinu greiðir eigendum sínum arð. Einkarekin heilbrigðisfyrirtæki eru að miklu leyti rekin af skattfé almennings, og á síðasta ári högnuðust einkarekin fyrirtæki í almenningsþjónustu um stórar fjárhæðir, eins og var vel bent á landsþingi ASÍ. Finnst þér sanngjarnt að þitt skattfé endi í að borga lúxusíbúðir fyrir eigendur heilbrigðisfyrirtækja? Væri ekki betra að endurfjárfesta þessum fjármunum í að bæta fjársvelt heilbrigðiskerfi? Önnur ástæða er að vegna eðlis á hagkvæmum fyrirtækjarekstri mun einkavæðing alltaf bitna á starfsfólki og enda í skertu þjónustustigi. Ef þú ert að reka fyrirtæki, þá viltu alltaf halda kostnaði í lágmarki og rukka eins mikið og þú kemst upp með áður en fólk hættir að versla við þig. Ef þú ert aðillinn sem rekur almenningssamgöngur, er þér helst umhugað hvernig á að koma fyrirtækinu út í sem mestum plús og þú getur. Það þýðir að þú vilt borga bílstjóranum eins lítið og þú kemst upp með, og að rukka sem hæst miðagjald. Og þetta er raunin. Bílstjórar sem vinna fyrir einkarekinn hluta strætókerfisins eru með lægri laun en bílstjórar sem vinna fyrir hið opinbera. Og hækkun miðaverðs síðustu ár segir í raun allt það sem segja þarf varðandi kostnaðinn á notendur. Ef við tökum út hagnaðarkröfu þessara einkaaðila getum við bætt kjör starfsfólksins, og lækkað kostnað á notendur. Einnig er hægt að koma eðlilegri verðstýringu á markað, með þátttöku hins opinbera. Á byggingarmarkaði getur óhagnaðardrifið byggingarfélag sett eðlilega staðla á kostnað, og dregið verulega úr gróðabraski og okri. Einnig mun slíkt byggingarfélag sem er einungis með þá kröfu að koma út á núlli í kostnaði verða töluvert ódýrari fyrir almenning og þar af leiðandi lækka húsnæðiskostnað. Að eðli opinbers reksturs sé óskilvirkt er bara mýta sem hægrimenn hafa endurtekið það oft að fólk er orðið hrætt við þetta. Hagnaðarkrafan og þversagnirnar sem ég hef bent á eru líka ansi óskilvirkar fyrir okkur almenning, þó þau hagnist vissulega eigendum. Þessi þróun síðustu ára veldur áhyggjum hjá mér. Viljum við sjá enn fleiri innviði verða gróðavæddir á þennan hátt? Það er raunveruleg hætta að í næstu kosningum muni nýfrjálshyggja Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins sigra, einnig tel ég Samfylkinguna vera að færast nær og nær því að verða einfaldlega rauðmerktur Sjálfstæðisflokkur, og ég treysti borgarstjóraefni þeirra, Pétri Marteinssyni mjög takmarkað í að standa vörð um félagslega innviði borgarinnar. Ég vil ekki sjá hverja einustu opinberu þjónustu þurfa að skila af sér hagnaði til eigenda, og þar af leiðandi verða óhagkvæmari fyrir verkafólk og notendur. Hvatinn í samfélaginu verður að vera fyrir almenning, en ekki hin ofurríku! Höfundur er forseti ROÐA – ungra sósíalista og skipar 8. sæti lista Sósíalistaflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar