Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2026 23:52 Atkvæði talin í Færeyjum í kvöld. EPA/ALVUR HARALDSEN Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið.
Fólkaflokkurin. sem er hægri íhaldsflokkur, fékk 26,7 prósent atkvæða, samkvæmt Kringvarpi Færeyja. Það er aukning um 7,8 prósentustig frá síðustu kosningum. Flokkurinn fær níu þingmenn. Sambandsflokkurinn er næst stærstur með 21,5 prósent atkvæða. Hann bætti við sig 1,5 prósentustigi. Flokkurinn fær sjö þingmenn. Javnaðarflokkurinn er með 18,9 prósent atkvæða, sem er 7,7 prósentustigum minna en í síðustu kosningum, og fær sex þingmenn. Tjóðveldi er með 17,4 prósent atkvæða, sem er 0,3 prósentustigum minna en síðast, og fær einnig sex þingmenn. Þá er Framsókn með 6,6 prósent atkvæða, sem er 0,9 prósentustigum minna en síðast, og fær tvo þingmenn. Boðað var til kosninga í síðasta mánuði en áður átti ekki að kjósa fyrr en í desember. Ástæðan er deilur vegna veglínu Suðureyjarganga. Sjá einnig: Boðaði þingkosningar í skyndi Kjörsókn var 89,5 prósent. Blaðamaður Vísis ræddi nýverið við Høgna í Jákupsstovu, fréttamann á Kringvarpi Færeyja, um kosningarnar. Hann sagði þá að stærsta verkefni landsstjórnarinnar hefði frá upphafi verið að ná sátt um gerð gangna til Suðureyjar sem yrðu einhver stærstu opinberu framkvæmdir í sögu eyjanna með tilheyrandi kostnaði. Að lokum hafi flokkarnir náð sátt um að bjóða göngin út en að Framsóknarflokkurinn hafi sett því það skilyrði að samhliða því yrði frumvarp um hækkun ellilífeyrisaldurs. Það var samþykkt með miklum naumindum á Lögþinginu. Þá boðaði Aksel Johannesen, lögmaður Færeyja, til skyndikosninga. „Þetta var svolítið óþokkabragð að vissu leyti. Það lítur þannig út. En maður getur alveg skilið það, hann var undir pressu því öll stéttarfélögin voru æf vegna frumvarpsins um eftirlaunaaldurinn. Það var ekki unnið í samráði við þau. Hann kaus að koma sinni áætlunargerð í gegn og boðaði svo til kosninga. Þannig má segja að hann nái að halda góðu sambandi sínu við stéttarfélögunum. Eða í það minnsta slétta þúfurnar,“ sagði Høgni.
Færeyjar Kosningar í Færeyjum Tengdar fréttir Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Um fimmtungur kjósenda hafði ekki gert upp hug sinn í síðustu skoðanakönnun sem var gerð fyrir kosningar til færeyska lögþingsins sem fara fram í dag. Færeyingar kusu sér fulltrúa á danska þinginu fyrr í vikunni. 26. mars 2026 10:21 Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins. 23. febrúar 2026 22:42 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira
Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Um fimmtungur kjósenda hafði ekki gert upp hug sinn í síðustu skoðanakönnun sem var gerð fyrir kosningar til færeyska lögþingsins sem fara fram í dag. Færeyingar kusu sér fulltrúa á danska þinginu fyrr í vikunni. 26. mars 2026 10:21
Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins. 23. febrúar 2026 22:42