Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. mars 2026 15:55 Dansdómarinn Dermot Clemenger, sem var á flótta undan sænskum yfirvöldum frá árslokum 2024 til janúar 2026, átti að dæma á íslenskri danskeppni í júní en hefur verið tekinn af dagskránni eftir að upplýsingar um afbrot hans bárust til skipuleggjenda. Írsk-sænski dansdómarinn Dermot Clemenger, sem flúði Svíþjóð eftir að hafa verið ákærður fyrir að kaupa sér vændi 31 sinni, átti að dæma í danskeppninni Icelandic Dance Festival sem fer fram í júní. Eftir að fregnir af þátttöku hans birtust í sænskum miðlum hefur hann verið fjarlægður af síðu keppninnar.
Dermot Clemenger er frægur dansari og dansdómari í Svíþjóð, vann fjölmarga írska og sænska danstitla á tíunda áratugnum og var dómari við sænsku danskeppnina Let's Dance á TV4 frá 2006 til 2015 og frá 2020 til 2023. Clemenger var handtekinn og yfirheyrður vorið 2024 eftir áralanga rannsókn lögreglunnar í Örebrö á tælenskum nuddstofum vegna gruns um að þar færi fram vændisstarfsemi. Samkvæmt umfjöllun Expressen var Clemenger grunaður um að hafa keypt 31 sinni vændi á sautján nuddstofum í fjórum borgum. Clemenger neitaði í fyrstu sök í málinu en játaði á endanum sekt sína í þrjátíu ákæruliðum eftir tvo daga í haldi lögreglu. Þann 19. desember úrskurðaði héraðsdómstóllinn í Örebro hann í gæsluvarðhald en Clemenger mætti ekki fyrir dómara og flúði land í kjölfarið. Saksóknarinn Per Svensson staðfesti svo í tölvupósti til Expressen 30. desember 2024 að Clemenger væri eftirlýstur bæði í Svíþjóð og á alþjóðavettvangi. Clemenger hefur haldið sig í Bretlandi síðustu tvö ár, að því er virðist til að bíða eftir því að brotin myndu fyrnast 25. janúar 2026 en þá voru tvö ár liðin frá síðustu vændiskaupum hans. Snúinn aftur til Svíþjóðar Fyrr í dag greindi Aftonbladetfrá því að Clemenger væri snúinn aftur til Svíþjóðar og hefði birt myndir frá veitingastöðum í Örebrö. Í umfjöllun blaðsins kom jafnframt fram að Clemenger væri snúinn aftur í dansbransann og yrði hluti af dómarapanel íslensku danskeppninnar Icelandic Dance Festival sem fer fram 13. til 14. júní í Reykjavík. Fregnir af þátttöku Clemenger í Icelandic Dance Festival voru til umfjöllunar í sænskum miðlum. Á vefsíðu og samfélagsmiðlum Icelandic Dance Festival, eða Íslensku danshátíðarinnar, birtist í gær færsla um hvaða dómarar myndu dæma í keppninni. Fjöldi alþjóðlegra dómara var þar á lista frá fjölmörgum löndum, þar á meðal íslenski dansdómarinn Gunnar Gunnarsson og fyrrnefndur Dermot Clemenger. Síðdegis í dag var færslan hins vegar fjarlægð og ný færsla birt í staðinn með sömu dómurum nema hvað nafn Clemenger hafði verið fjarlægt. Vissu ekki af brotum Clemenger Upp úr tvöleytinu í dag birtist síðan yfirlýsing um málið frá danskeppninni skrifuð af skipuleggjandanum Árna Sigurgeirssyni. „Dómnefndir fyrir komandi heimsmeistaramót og Íslensku danshátíðina voru nýlega tilkynntar. Þessir viðburðir eru skipulagðir af íslenskri fjölskyldu sem hefur ástríðu fyrir samkvæmisdansi og hefur skuldbundið sig til að færa íslenska danssamfélaginu þetta mikilsmetna tækifæri í fyrsta skiptið,“ sagði í tilkynningunni. „Dermot hættir,“ segir í Expressen. „Þótt dómararnir hafi upphaflega verið valdir út frá faglegum forsendum og orðstír í dansbransanum, hafa nýjar mikilvægar upplýsingar komið í ljós sem varða einn einstakling. Hefðu þessar upplýsingar legið fyrir við dómaravalið hefði það algjörlega breytt samsetningu dómnefndanna,“ sagði jafnframt og er þar greinilega verið að vísa til Clemenger. Í kjölfarið hafi verið gerðar breytingar á dómnefndunum. „Dómaravalið var ekki hugsað til að valda skaða eða umtali eða styðja við meint brot eða ólöglegt framferði. Skipuleggjandinn hefur ekkert umburðarlyndi gagnvart slíkum brotum eða ólöglegri hegðun og leggur ekki blessun sína yfir neinar gjörðir sem brjóta í bága við lög,“ sagði að lokum í tilkynningunni. „Dermot Clemenger hent út,“ segir í fyrirsögn Aftonbladet. Fréttastofa sendi fyrirspurn í skipuleggjendur keppninnar sem þótti málið afar leitt og ítrekuðu fyrri yfirlýsingar. „Við höfðum enga vitneskju um sögu þessa ákveðna einstaklings, og hefðu þær upplýsingar legið fyrir áður en endanlegt val á dómurum fór fram, hefði útkoman verið allt önnur,“ sagði í svari við fyrirspurninni. Mál Clemenger hefur verið umtalað í Svíþjóð og lýstu bæði hægriflokkurinn Moderaterna og Sósíaldemókratar því yfir að þau væru opin fyrir því að breyta fyrningartíma á vændiskaupum.
Dans Svíþjóð Vændi Erlend sakamál Mest lesið Seldu skuldlaust hótel og fóru að leika sér Lífið Barnsmóðir og dætur Eyjólfs fluttar til Íslands Lífið Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Lífið Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Menning Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið Hvað veistu um… IKEA? Lífið Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Bíó og sjónvarp Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Tíska og hönnun Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Lífið Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Lífið samstarf Fleiri fréttir Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira