Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 29. mars 2026 12:18 Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ segir vísbendingar um að verið sé að misnota kerfið. Vísir/Steingrímur Dúi Umsóknum til Útlendingastofnunar um au-pairleyfi hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Á þriðja hundrað umsóknir bárust á síðasta ári en átta af hverjum tíu sem fengu dvalarleyfi koma frá Filippseyjum.
Sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ segir vísbendingar um að kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl á heimilin og kallar eftir að útgáfu leyfanna verði hætt.Útlendingastofnun sér um útgáfu dvalarleyfa á grundvelli vistráðninga en það eru leyfi fyrir fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins til að koma hingað til lands sem au-pair. Á síðustu árum hefur umsóknum um slík leyfi fjölgað en í fyrra bárust tvö hundruð og fjörutíu umsóknir en af þeim voru 152 vegna fyrsta leyfis. Til samanburðar má sjá að fyrir tíu árum, eða árið 2015, voru umsóknirnar 57. Tölur Útlendingastofnunar sýna jafnframt að á síðustu sex árum voru útgefin nærri sex hundruð leyfi en átta af hverjum tíu sem fengu dvalarleyfi komu frá Filippseyjum. „Við höfum svo sem oft í gegnum tíðina, verkalýðshreyfingin, gagnrýnt þetta vistráðningarkerfi út af fyrir sig, af því að þarna er um að ræða ungmenni sem að búa inni á heimilum fólks og eru óvarin og eru ekki í rauninni hluti af vinnumarkaði. Sérstaklega veldur áhyggjum svona þessi aukning, það virðist vera mikil aðsókn í au pair frá Filippseyjum, af því að það eru ungmenni sem að eru frá löndum þar sem laun eru mun lægri og kannski tækifæri til tekna minni. Við teljum að þarna sé verið að misnota kerfið til þess að fá í rauninni ódýrt vinnuafl inn á heimilin og við sjáum bara vísbendingar um það,“ segir Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandi Íslands. Hefur þú sögu að segja sem tengist au pair á Íslandi? Sendu okkur fréttaskot hér. Dæmi eru um að brotið hafi verið á rétti fólksins og hefur lögregla meðal annars að beiðni Útlendingastofnunar kannað aðstæður á heimilum þar sem fólkið dvelur. Saga segir fólkið aðeins fá vasapeninga en ekki vera í neinu stéttarfélagi og njóta því ekki verndar eins og annað launafólk. Þá á hámarksvinnutíminn að vera fimm klukkustundir á dag sem er ekki alltaf virt. Noregur hefur farið á leið að hætta að gefa út þessa tegund dvalarleyfa vegna þess hve mikil hætta er á misneytingu kerfisins og vill ASÍ að farið verði sömu leið hér á landi.„Við höfum kallað eftir því og höfum komið því til skila við dómsmálaráðherra að við teljum að það þyrfti að hætta að gefa út þessi dvalarleyfi vegna þess að ég held að það sé ekki raunhæft að hafa nægilegt eftirlit á heimilum fólks með þessum hætti. Þannig að ef við getum ekki, ef við treystum okkur ekki til að tryggja öryggi þessara ungmenna, þá eigum við auðvitað ekki að gefa út þessi leyfi og eins og ég segi, það snýst ekki um að maður vilji ekki að filippseysk ungmenni hafi tækifæri til þess að vinna á Íslandi, en það þarf þá bara að gera það með réttum leiðum í gegnum atvinnuleyfakerfið.“
Filippseyjar ASÍ Au-pair Vinnumarkaður Innflytjendamál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira