Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Birgir Olgeirsson skrifar 20. mars 2026 22:22 Reynir Bjarni Egilsson, framkvæmdastjóri trygginga og tjóna hjá VÍS. Vísir/Ívar Fannar Skekkja í íslenskum skaðabótalögum hækkar iðgjöld viðskiptavina tryggingafélaga og kostar samfélagið milljarða króna á ári. VÍS kallar nú eftir endurskoðun laganna, einfaldara matsferli og miðlægu kerfi í bótamálum vegna líkamstjóna, einkum í umferðarslysum.
Að mati VÍS er brýnt að endurskoða hvernig bætur vegna líkamstjóna eru metnar svo kerfið verði bæði sanngjarnara og skilvirkara. „Út frá sanngirni þá þarf að passa upp á að þeir sem eiga skilið háar bætur fái háar bætur en aðrir sem fá kannski metna varanlega örorku, sem er ekki í raun, séu að fá of háar bætur. Við viljum að þetta sé jafnað í báða enda,“ segir Reynir Bjarni Egilsson, framkvæmdastjóri trygginga og tjóna hjá VÍS. Mætt út á vinnumarkað stuttu síðar Hann segir að núverandi kerfi nái ekki alltaf réttum niðurstöðum. Annars vegar þurfi að tryggja að þeir sem verði fyrir mjög alvarlegum slysum, jafnvel snemma á lífsleiðinni, fái sanngjarnar og nægilega háar bætur. Hins vegar komi fyrir að fólk fái bætur vegna metinnar varanlegrar örorku en sé komið aftur út á vinnumarkað á tiltölulega skömmum tíma. „Þannig að ungt fólk sem lendir í alvarlegum slysum snemma á lífsleiðinni fær í einhverjum tilfellum ekki nógu háar bætur en á móti kemur að fólk sem fær bætur, til dæmis út á varanlega örorku, er mætt út á vinnumarkað stuttu síðar.“ Kostnaður í kerfinu vex hraðar en bótagreiðslur VÍS leggur til að komið verði á miðlægu og gagnsæju matskerfi þar sem tjónþolar geti leitað á einn stað. Í dag þurfi margir að skila sömu eða svipuðum gögnum til tryggingafélaga, sjúkratrygginga, lífeyrissjóða og stéttarfélaga, sem geri ferlið þungt, dýrt og flókið. „Kostnaðurinn í kerfinu í kringum þetta hefur verið að aukast hraðar en bótagreiðslur. Þá erum við að tala um kostnað í kringum lögfræðinga, matskostnað lækna, vottorð og þessa umgjörð í kringum kerfið.“ Samkvæmt VÍS koma rúmlega eitt þúsund mál sem varða líkamstjón í umferðarslysum á borð félagsins árlega. Sá málaflokkur sé langstærstur á þessu sviði. Þá sýni gögn að níu af hverjum tíu málum sem byggja á varanlegri örorku varði minna en 15 prósenta örorku. Vísa til Danmerkur og annarra Norðurlanda Á Norðurlöndum eru til sambærileg matskerfi og í Danmörku fara mál af þessu tagi almennt ekki í sama farveg og hér á landi. Þar eru slík tilvik frekar metin sem miski en ekki út frá áætluðu tekjutapi út starfsævina. Rannsóknir hér á landi hafa jafnframt bent til þess að metin varanleg örorka sé oft hærri en raunverulegt tekjutap gefi tilefni til. VÍS telur skynsamlegt að ráðast í endurskoðun á skaðabótalöggjöfinni, sem gæti lækkað kostnað neytenda og samfélagsins. Vilhelm VÍS telur einnig skynsamlegt að unnt sé að endurskoða mál síðar ef heilsu fólks hrakar og rekja megi það til eldra slyss, í stað þess að minni mál fari strax í farveg varanlegrar örorku. Breytingar geti lækkað kostnað Að mati félagsins gætu breytingar á lögunum lækkað kostnað í kerfinu og til lengri tíma skapað svigrúm til lægri iðgjalda á ökutækjatryggingum. Neytendasamtökin hafi einnig bent á þann möguleika. VÍS telur jafnframt að ógegnsætt matsferli í þessum flókna málaflokki geti ýtt undir fleiri svikamál en ella. Félagið segir einnig að miðað við fyrirliggjandi gögn virðist þessi mál bæði hlutfallslega fleiri og stærri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum. Kallað hefur verið eftir breytingum á löggjöfinni áður, meðal annars árin 2018 og 2022, en sú vinna hefur ekki skilað árangri. „Þetta hefur komið upp bæði 2018 og 2022. Þar fór þetta í gang í þinginu en þetta var ekki klárað. Það þarf ákveðna heildarendurskoðun á þessum málaflokki,“ segir Reynir.
Tryggingar Fjármál heimilisins Verðlag Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira