Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 23:17 Það er eins gott að vera með miðana klára og á góðum stað þegar farið er á fótboltaleiki í Englandi. Þessir stuðningsmenn Sheffield United voru með allt á hreinu þegar þeir mættu á leik á Wembley-leikvanginum. Getty/Nick Potts Að fara inn á fótboltaleik í Englandi og Wales án miða verður refsivert brot samkvæmt nýjum lögum sem taka gildi fyrir úrslitaleik Carabao-bikarsins milli Arsenal og Manchester City á Wembley á sunnudag.
Brotamenn eiga yfir höfði sér allt að fimm ára bann frá fótboltaleikjum, auk sektar upp á allt að þúsund pund eða 167 þúsund í íslenskum krónum. Breska ríkisútvarpið fjallar um málið. Alvarlegar óeirðir Löggjöfin hefur verið sett í kjölfar alvarlegra óeirða sem skyggðu á úrslitaleik Evrópumótsins milli Englands og Ítalíu á Wembley í júlí 2021, þegar þúsundir stuðningsmanna brutu sér leið inn á leikvanginn. Nýju lögin eru hönnuð til að taka hart á því að fólk smygli sér inn, þar sem stuðningsmenn án miða komast í gegnum aðgangshlið með því að fylgja fast á eftir löglegum miðahöfum. Tailgating at matches to become criminal offence https://t.co/m5Iy1EYpMJ— BBC News (UK) (@BBCNews) March 20, 2026 Það verður einnig ólöglegt að reyna vísvitandi að komast inn með fölsuðum miðum, pössum og aðgangsheimildum, eða með því að þykjast vera starfsmaður. Engar sérstakar lagalegar refsingar til Hingað til hafa engar sérstakar lagalegar refsingar verið fyrir það að fara inn á fótboltaleik án miða og stuðningsmönnum sem nást hefur yfirleitt verið vísað út án frekari refsingar. Sextíu og níu handtökur voru gerðar í tengslum við úrslitaleik Carabao-bikarsins í fyrra og staðfesti lögreglan í London á þeim tíma að meirihlutinn hefði verið fyrir að reyna að komast inn á Wembley án miða. En hingað til gat lögreglan aðeins ákært sökudólg fyrir grunað svik, sem gerði saksókn ólíklega. Án þess að finna fyrir óöryggi eða ógn „Fótboltaáhugamenn eiga að geta notið leiksins án þess að finna fyrir óöryggi eða ógn. Við erum að gefa lögreglunni þau tæki sem hún þarf til að tryggja að óreiðan sem við sáum á Wembley fyrir fimm árum endurtaki sig aldrei. Hver sá sem stofnar öðrum í hættu með því að brjóta sér leið inn á leikvanga á alvarlegar afleiðingar yfir höfði sér,“ sagði Sarah Jones, ráðherra löggæslumála.
Enski boltinn Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira