„Ég væri ekki að þessu nema það væri fyrir hana“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. mars 2026 10:02 Hilmar Örn kallar nýja Íslandsmetið ekkert kraftaverkakast og stefnir á að slá það aftur, með góðum stuðningi konu sinnar. Patrick Smith/Getty Images Hilmar Örn Jónsson bætti sex ára gamalt Íslandsmet sitt í sleggjukasti um síðustu helgi. Hann segir flutning til Svíþjóðar hafa hjálpað honum heilmikið að slá loksins metið en fjölskylduna eiga mesta heiðurinn skilið.
Hilmar bætti Íslandsmetið um heila 93 sentimetra með 78,03 metra kasti, sem kom honum í leiðinni inn á EM. Hann hafði verið að elta þetta met með misgóðum árangri síðustu sex ár en segir það ekki hafa komið á óvart að sjá metið falla um helgina. „Æfingar hafa gengið mjög vel og það þurfti ekki kraftaverk til að fá þetta kast. Sætt að koma því út og gaman að framkvæma mótið svona vel. Það er búið að ganga mjög vel og ég hef séð bætingar þannig að ég vissi að metið myndi falla á einhverju móti, mjög sætt að geta gert það þarna [á Evrópubikarkastmótinu í Kýpur],“ segir Hilmar. Þennan góða árangur að undanförnu skrifar Hilmar á flutning til Svíþjóðar en hann hefur búið þar í rúmlega ár, með góðan þjálfara og ekki endalaust einn á æfingu eins og þegar hann bjó á Íslandi. „Ég var alltaf einn sko… Hér er fullt af fólki að æfa með mér og mjög góður hópur. Það er gott gengi hérna og einhvern veginn fann ég bara mitt hér. Hópurinn er með marga mjög góða íþróttamönnum og marga sem eru í kastgreinunum, það er góð stemning í hópnum.“ View this post on Instagram Fjölskylduna segir hann þó eiga mesta heiðurinn skilið en Hilmar er í sambúð og á tvö börn með Kristínu Karlsdóttur. „Konan mín er ótrúleg. Hún sætti sig við þetta, að flytja hingað út. Hún var kasólétt og við eignuðumst dóttur okkur hérna fyrir ári síðan. Hún hefur verið ótrúleg að halda öllu gangandi á heimilinu, á meðan ég er á æfingum eða einhvers staðar úti í heimi að keppa. Hún á mikið í þessu, eða mest í þessu bara. Ég væri ekki að þessu nema það væri fyrir hana.“ Fjallað var um sleggjukastarann og vel heppnaðan flutning hans til Svíþjóðar í Sportpakka Sýnar í gær. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Frjálsar íþróttir Svíþjóð Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sjá meira