Valdi HM yfir kærastann Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2026 09:32 Júlía Kristín Jóhannesdóttir hefur þríbætt Íslandsmetið í greininni og fékk óvænt boð á HM sem hún stökk á þrátt fyrir önnur plön um helgina. Vísir/Lýður Valberg Júlía Kristín Jóhannesdóttir er meðal þriggja þátttakenda Íslands á HM í frjálsum íþróttum innanhúss um helgina. Boð á mótið bar bratt að og hún neyddist til að velja milli þátttöku og löngu planaðrar helgarferðar með kærastanum.
Eftir að hafa þríbætt Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur í 60 metra grindahlaupi fékk Júlía Kristín boð með skömmum fyrirvara. „Ég er ennþá svolítið að átta mig á því að þetta sé að gerast. En ég er ofboðslega spennt og rosa ánægð að það sé bara eitt 60 metra hlaup eftir en síðan förum við aftur út og þá eru 100 metra grind eftir en ekki 60. Þá eru önnur met að slá þar,“ segir Júlía kokhraust en um er að ræða síðasta innanhúsmót ársins. Á þeim er keppt í 60 metra grindahlaupi en 100 metrum utanhúss. Júlía hafði planað helgarferð með kærasta sínum vestanhafs en þau plön breyttust hratt. „Ég átti að fara til Boston að hitta kærastann minn, við áttum að vera á leið á hótelið á miðvikudaginn. En ég valdi frekar að fara á HM og hitta kærastann bara á Íslandi í staðinn. Maður getur alltaf farið til Boston en ekki alltaf farið á HM,“ segir Júlía. Þið gátuð sem sagt hist hér heima og sambandið ekkert búið þó ferðinni sé aflýst? „Nei, nei, ég hef náð að hitta hann alla daga hérna og við nýtum þá vel saman áður en maður fer aftur út,“ segir Júlía létt. Júlía stundar nám í Bandaríkjunum og er hluti af sterkri frjálsíþróttadeild við Rice University í Texas. Ein önnur úr skólanum fékk boð á mótið. „Ég er er eina úr skólanum. Það er ein önnur sem fékk boð en hún ákvað að sleppa því. Hún var líka búin að plana eitthvað með kærastanum,“ segir Júlía og hlær. Júlía keppir í 60 metra grindarhlaupi kvenna, en hlaupið verður mjög sterkt. 47 keppendur frá 34 þjóðum eru skráðir til leiks í greininni. Júlía er yngst keppenda í greininni en hún er fædd 2005. Hún hleypur í hádeginu á morgun, sunnudag. Viðtalið í heild má sjá að neðan. Klippa: „Maður getur alltaf farið til Boston en ekki alltaf farið á HM“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira