Vanfjármögnun leikskólanna er ekki valkostur James Robb skrifar 20. mars 2026 15:17 Sveitarstjórnarkosningar eru framundan og nú er rétti tíminn til að ræða alvarlegt ástand leikskólakerfisins í Reykjavík. Í leikskóla sonar míns er full fimm daga vika undantekning, ekki regla. Í hverri viku eru börnin send heim vegna þess að of margir starfsmenn eru frá vegna veikinda. Þannig hefur þetta verið í nokkurn tíma og innleiðing styttri vinnuviku hefur einungis aukið á vanda kerfis sem var þegar brothætt. Fjölskyldur, sem margar hverjar búa sjálf ekki við styttri vinnuviku, treysta á þetta kerfi og það bregst þeim. Þetta er ekki andstaða við styttri vinnutíma. Ég vil betri kjör fyrir alla launþega, þar á meðal þá sem sjá um börnin í samfélaginu okkar. Röksemd mín byggir á einfaldri stærðfræði: ef þið getið ekki tryggt fulla viku til að byrja með, og ætlið síðan að stytta vinnutíma án þess að fjölga starfsfólki, þá er engin leið að veita þá þjónustu sem fjölskyldur þurfa. Þetta er ekki skoðun, þetta er bara einföld stærðfræði. Þetta eru heldur ekki rök fyrir meiri vinnu. Ég myndi eyða hverjum degi með syni mínum ef ég hefði efni á því, en í dag lifum við í samfélagi sem krefst ekki bara einnar tekjulindar á heimili, heldur venjulega tveggja. Efnahagskerfið sem leiðtogar okkar hafa látið þróast krefst þessa af okkur. Þegar leikskólarnir geta ekki veitt þjónustu lenda fjölskyldur milli steins og sleggju – af báðum foreldrum er ætlast að þeir vinni í fullu starfi, en um leið minna en fullt starf til að bæta upp fyrir bilið í dagvistunarþjónustu. Þetta er gríðarlega óstöðugt fyrir heimili, og tvöfalt verra fyrir þá sem búa við minna skilningsríka vinnuveitendur. Raunhæf lausn á þessu vandamáli er engin ráðgáta fyrir neinum sem hefur velt þessu fyrir sér í meira en fimm mínútur. Leikskólarnir þurfa fleira starfsfólk. Til þess að hafa meira starfsfólk þurfa þeir meiri fjármögnun. Það sem ég skil ekki er þögnin frá vinstri flokkum Íslands í þessu máli. Hvar er hreinskilin opinber umræða um fjármögnun? Hvar er opin og heiðarleg viðurkenning á því hvað rekstur leikskóla í efnahagskerfi okkar kostar í raun og veru? Ég vil bestu umönnun fyrir barnið mitt, og öll önnur börn. Ég er fullkomlega reiðubúinn til að borga það sem það kostar, vegna þess að ég á engan annan kost í efnahagskerfi okkar. Svo segið mér, hvað kostar það? Núverandi ástand neyðir fjölskyldur til að reyna vikulega að púsla saman vinnu og þörfum barna sinna. Sumir munu svara: umönnun barna er erfið og tímafrek; þú vissir hvað þú varst að fara út í. Ég myndi segja, eins klisjukennt og það kann að hljóma, að börn séu mikilvægasta auðlind okkar. Án næstu kynslóðar eigum við ekkert. Vandamál okkar skipta engu máli ef enginn er til staðar til að leysa þau eða upplifa þau. Fræðin um fólksfækkun eru uggvænlegt lesefni – afleiðingarnar geta verið gríðarlegar og að snúa þróuninni við er ekki auðvelt. Ísland hefur ekki viðhaldið sjálfbærri fæðingartíðni síðan á níunda áratugnum. Bilið hefur verið fyllt alfarið með innflytjendum og við sjáum sama mynstur í flestum vestrænum löndum. Það væri afar barnalegt að halda að innflytjendur séu ótakmörkuð auðlind. Eftir því sem lífsgæði á Íslandi og erlendis verða samleitari verða færri og færri sem sjá hag sinn í því að flytja búferlum til Íslands. Stærðfræðin gengur einfaldlega ekki upp – það getur ekki verið svo að flest lönd muni treysta á innflytjendur. Einhver verður að eignast börn. Niðurstaðan, ef við fylgjum rökfræðinni, er sú að við verðum að skapa aðlaðandi skilyrði fyrir foreldra. Börn eru undirstaða hvers einasta þáttar í lífi okkar og áframhaldandi tilveru. Ef þú telur ekki að besta fjárfestingin sem þú getur gert sé að tryggja að samfélagið þitt framleiði nóg af börnum, þá hefur þú ekki reiknað rétt. Fjármögnun leikskólanna er ekki hugmyndafræðileg spurning, heldur praktísk. Ég er meira en reiðubúinn til að borga. Eru þau sem biðja um atkvæði þitt reiðubúin að gera slíkt hið sama? Höfundur er tölvunarfræðingur (M.Sc.) og faðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar