Myndi hjálpa töluvert að fá skilaboð um að það yrðu ekki átök á vinnumarkaði
Það myndi draga úr óvissu og slá á hækkun verðbólguvæntinga ef aðilar vinnumarkaðarins kæmu strax út með þau skilaboð að það væru ekki að fara hefjast átök á vinnumarkaði með því að virkja uppsagnarákvæði kjarasamninga, að sögn seðlabankastjóra. Að því marki sem frumvarp stjórnvalda sem miðar að því að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu hefur áhrif á trúverðugleika ríkisfjármála þá væri það jákvætt innlegg að falla frá þeim áformum við núverandi aðstæður.
Tengdar fréttir
Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“
Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.