Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta enda svona“ Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 07:34 Schmeichel-feðgarnir eiga það sameiginlegt að hafa orðið Englandsmeistarar. Nú gæti verið að fótboltaferli þeirra beggja sé lokið. Getty/Michael Regan Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel gæti hafa spilað sinn síðasta fótboltaleik. Hann ræddi um þetta ásamt pabba sínum, Manchester United goðsögninni Peter Schmeichel, í sjónvarpsútsendingu í gærkvöld. Pabbinn telur soninn hafa fórnað sér um of í landsleik.
Schmeichel yngri er 39 ára gamall og hefur leikið 120 A-landsleiki fyrir Danmörku, örlítið færri en pabbi hans, en getur ekki hjálpað Dönum í komandi umspili um að komast á HM í sumar. Kasper, sem er markvörður Celtic í Skotlandi en hefur á ferlinum meðal annars orðið Englandsmeistari með Leicester 2016, er nefnilega alvarlega meiddur í öxl. Hann þarf nú að fara í aðgerð sem kemur til með að halda honum frá keppni í 10-12 mánuði. „Ég gæti hafa spilað minn síðasta fótboltaleik. Ég hef verið fótboltamaður frá því að ég fæddist. Þessi hugsun eyðileggur mann. Það er mjög, mjög erfitt að skilja þetta núna,“ sagði Kasper í útsendingu CBS frá Meistaradeild Evrópu. “I could’ve potentially played my last football game.”Our guest reporter Kasper Schmeichel reveals that he has dislocated his shoulder, and torn his bicep, rotator cuff and labrum. The Dane opens up about requiring two surgeries that will keep him out for 10 to 12 months. pic.twitter.com/75fskUSAd2— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) March 17, 2026 Fórnaði sér í landsleik með brotna öxl Kasper stóð þar við hlið föður síns sem var ekki síður í áfalli: „Ég vil ekki að þetta endi svona – með svona meiðslum. Hann axlarbrotnaði fyrir ári síðan í leik fyrir Danmörku gegn Portúgal, þegar allar skiptingar höfðu verið notaðar. Hann hélt áfram því þetta var átta liða úrslit Þjóðadeildarinnar og varði vel. En auðvitað getur maður ekki spilað með brotna öxl – en hann gerði það og var frá í stuttan tíma á eftir. Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu slæmt það er fyrir markvörð að meiðast í öxl, í hvert skipti sem þú hendir þér á þá hlið, þá lendir þú á öxlinni,“ sagði Peter og hélt áfram. „Í leiknum gegn Stuttgart lentir þú [Kasper] aftur á öxlinni og þurftir að fá aðra sprautu, og það olli viðbrögðum sem við vildum ekki. Á mánudaginn fengum við slæmu fréttirnar – því þetta er virkilega slæmt. Ég hjálpa Kasper eins mikið og ég get, en auðvitað kemur þetta tilfinningalega högg eftir nokkra daga: „Vá, ferill Kaspers gæti verið á enda vegna þessa.““
Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Handbolti Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Farsinn framlengist: Senegal áfrýjar til Alþjóðadómstólsins Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Ísland spilar í Tókýó í sumar „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Sjá meira