Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar 14. mars 2026 08:02 Í gær birti forstjóri Arctic fish Daníel Jakobsson grein er varðar atvinnuuppbyggingu í kring um fiskeldi á vestfjörðum. Hann lagði fram mynd um brotna byggð sem hafi síðan orðið umbylt af atvinnu uppbyggingu og byggðin hafi blómstrað á ný. Það getur vel verið að byggðin á vestfjörðum hafi blómstrað en hver er fórnarkostnaðurinn? Ábyrgt fiskeldi? Daníel er verulega brattur og segir að verið sé byggja upp ábyrgt fiskeldi og að einnig sé verið að “nýta auðlindir svæðisins á ábyrgan hátt.”. Ég veit ekki betur en að fyrirtæki Daníels sé einmitt valdur af einni af stærstu slysasleppingu sem hefur átt sér stað við Íslandsstrendur af kynþroska, fullvaxta norskum eldislaxi í Patreksfirði árið 2023. Við slysasleppingu þessarar framandi tegundar í íslenskri náttúru, er íslenska laxastofninum stefnt í hættu og þar með lífsviðurværum 2500 lögbýla á íslandi sem reiða sig á tekjur af laxveiðum. Óvitað er hverjar afleiðingar þessa “slys” Daniels eru, en taka verður fram að sleppingar sem þessar eru ekkert slys heldur fyrirsjáanleg afleiðing þessarar framleiðsluaðferðar. Síðan er alls óvíst um öll þau óskráðu strok úr sjókvíum og endalausa leka af seiðum sem erlendar rannsóknir og innlend gögn benda til að sé allt að fjórfalt meira en opinberar tölur sýna, sem leiðir til þess að verulegt magn eldisfisks sleppur út, nær kynþroska og gengur síðan upp í íslenskar ár, með alvarlegum og varanlegum afleiðingum fyrir villta laxastofna. Það er að engu leyti ábyrgt að notast við þessa framleiðsluaðferð í fiskeldi. Framleiðsluaðferð sem losar úrgang óhindrað í hafið sem er líkt og skólp frá 880.000 manns á ári hverju. Framleiðsluaðferð sem skapar aðstæður fyrir afar mikið magn laxalúsar, sem étur hold laxins og annara nytjafiska. Svo mikil er lúsin að meðal annars hefur fyrirtæki Daníels þurft ítrekað að grípa til skordýraeiturs ( til upplýsinga hefur verið notast við lúsaeitur 75 sinnum á Vestfjörðum frá árinu 2017) til að reyna að halda henni í skefjum, með ófyrirséðum áhrifum á lífríki hafsins. Þá ber einnig að nefna þau miklu afföll sem einkenna þessa framleiðslu, en þau nema að jafnaði yfir 20% á ári. Slík dánartíðni er óvenju há í matvælaframleiðslu og bendir hún til þess að aðbúnaður, heilbrigði og lífsskilyrði eldisfiskanna séu langt frá því að uppfylla grunnkröfur um dýravelferð. Sjókvíeldi og hagsmunir samfélagsins Það er auðséð að það er ekkert sem kallast ábyrgt fiskeldi á vestfjörðum, raunar er það mjög óabyrgt. Engu að síður er óumdeilt að greinin skapar störf, líkt og aðrar atvinnugreinar en sjálfur hefur Daníel nýlega lækkað laun starfsmanna sinna og fært til fóðurstöð fyrirtækisins á Ísafjörð, en áður hafði fóðurstöðin verið til húsa á Þingeyri. Arctic fish er ekki þarna til þess að skapa störf og mynda blómlegar byggðir heldur til þess að notast við íslenska náttúru og íslensk skilyrði til þess að græða fé. Þau skeyta engu að leggja hagsmuni bænda og eigenda lögbýla hér á landi sem reiða sig á tekjur af laxveiðihlunnindum á vogarskálarnar. Það skal teljast ásættanlegur fórnarkostnaður. Höfundur er laganemi og leiðsögumaður í laxveiði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Sjókvíaeldi Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar