„Þórsarinn er svo geggjaður“ Árni Gísli Magnússon skrifar 12. mars 2026 22:27 Brynjar Hólm er leikmaður Þórs. Brynjar Hólm Grétarsson, leikmaður Þórs, skoraði 8 mörk í 31-31 jafntefli í bæjarslagnum á Akureyri þar sem KA-menn komu í heimsókn í Höllina í lokaumferð deildarinnar. Þórsarar missa af úrslitakeppninni en halda sér uppi.
Þórsarar missa af úrslitakeppninni en halda sér uppi. Brynjar var með blendnar tilfinningar eftir rosalegan leik og fór yfir leikinn og tímabilið. „Ég veit það ekki. Ég er eiginlega brjálaður en á sama tíma bara flott skilurðu, þannig örugglega mjög skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur.“ Þórsarar byrjuðu ekki nægilega vel og lentu snemma 4-1 undir, en hvað orsakaði þessa vondu byrjun? „Ég veit það ekki, mér fannst við byrja allt í lagi. Við byrjuðum hægt og þeir náðu bara yfirhöndinni skilurðu. Þeir voru bara að mjatla þetta og þetta fór aldrei yfir einhver þrjú mörk þannig það var aldrei neitt stress eða neitt.“ Stemningin í Íþróttahöllinni var algjörlega frábær og hávaðinn og lætin eftir því og segir Brynjar frábært að fá að spila við þessar aðstæður. „Þetta er bara ógeðslega gaman. Þórsarinn er svo geggjaður og þetta er ólýsanlegt í alvöru talað.“ Þórsarar gátu með sigri komist í úrslitakeppnina en á sama tíma hefði HK þurft að tapa fyrir Haukum. HK vann að lokum Hauka og skiptu þá úrslitin ein og sér ekki máli fyrir Þórsara sem vissu þó ekki stöðuna í leiknum og voru því líklega farnir að sjá úrslitakeppnina í hyllingum þegar vel á stóð í leiknum og því eflaust miklar tilfinningar fram og til baka hjá leikmönnum. „Við náttúrulega fengum bara blóð á tennurnar, vinna þennan leik og komast í úrslitakeppni. Við erum búnir að vera alveg nokkuð flottir í síðustu leikjum, sigur á móti Aftureldingu og við komum í þennan leik og bara vinna og úrslitakeppni og geggjað en svo náttúrulega á sama tíma erum við búnir að tryggja sætið okkar sem var markmiðið okkar fyrir tímabilið, og ég er bara ógeðslega ánægður með það. Fá að koma hérna og allt að vinna.“ „Eftir áramót erum við bara búnir að vera helvíti góðir. Við fórum að vinna einmitt þessa jöfnu leiki sem við vorum ekki að ná, vorum að tapa hérna með einu, tveimur, jafntefli og svo einhvern veginn náum við einum og þá kemur sigurtilfinningin og svo náum við öðrum og meira. Við ljúkum þessu tímabili bara á mjög flottum stað sem lið, bara góðum stað, ég vil meina að við hefðum farið á flug í þessari úrslitakeppni, en það er bara eins og það er“, sagði Brynjar léttur í bragði. Þórsliðið er skipað uppöldum leikmönnum að langmestu leyti og er eflaust mikill drifkraftur fyrir liðið að halda sér uppi og koma inn í næsta tímabil fullt sjálfstrausts. „Eins og ég sagði áðan, markmið eitt, tvö og þrjú, þegar þú kemur svona upp, er að halda sæti sínu og nú er það bara nýtt tímabil, meiri vinna og að vita að við eigum bara að vera hérna og eins og ég segi, nú þarf stjórnin bara að fara hringja og sjá hvað er í boði og svo nætum við bara massívir á næsta tímabili“, sagði Brynjar að lokum.
Olís-deild karla Þór Akureyri Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Íslenski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira