Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar 13. mars 2026 08:03 Ég er alinn upp á Ísafirði, höfuðstað Vestfjarða. Hér hef ég alið manninn og alið upp börnin mín, byggt upp fyrirtæki, tekið þátt í stjórnmálum og íþróttum áður en ég tók við starfi forstjóra Arctic Fish. Tengsl mín við Vestfirði eru því ekki bara í gegn um vinnu heldur fyrst og fremst persónuleg. Í mörg ár bjó svæðið okkar við hnignun, sem endurspeglaðist í fólksfækkun, atvinnuóvissu og sveiflum í aflabrögðum. Nútímavæðing fiskveiða leiddi til skilvirkni og færri starfa. Vinnslan varð sjálfvirk og færri hendur voru nauðsynlegar. Ungt fólk fór, húsnæðisverð staðnaði og tekjur sveitarfélaga drógust saman. Frá árinu 2015 hefur þessari þróun verið snúið við. Við höfum séð fleiri atvinnutækifæri, nýjar fjárfestingar, sterkari fjárhag sveitarfélaga og hækkandi húsnæðisverð. Þrjár meginstoðir hafa átt þátt í þessum viðsnúningi. Vöxtur í ferðaþjónustu með heimsóknum næstum 200 skemmtiferðaskipa og rúmlega 200.000 gesta, tilkoma Kerecis sem alþjóðlegs lyfjafyrirtækis og uppbygging fiskeldis sem skapað hefur um 500 störf á svæðinu. Á Vestfjörðum búa aðeins um 7.000 manns en þetta litla svæði hýsir nú nokkur af stærstu laxeldisfyrirtækjum landsins, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki, öflug sjávarútvegsfyrirtæki, kalkþörungaverksmiðju og þörungaverksmiðju svo dæmi séu tekin. Það er engin tilviljun. Það endurspeglar tilveru okkar hérna sem felst í að nýta auðlyndir svæðisins á ábyrgan hátt. Hjá Arctic Fish gerum við okkur grein fyrir því að samfélagsleg umboð (e. social licence) eru ekki veitt í eitt skipti fyrir öll. Þau verða að vera stöðugt áunnin. Þátttaka í samfélaginu, atvinnusköpun, gagnsæi og umhverfisvernd eru ekki valkvæð. Þau eru grundvallaratriði. Við höldum því samtalinu opnu við sveitarfélögin og íbúana á svæðinu. Við erum ekki alltaf sammála, en við vinnum alltaf að því að finna sameiginlegan grundvöll. Við deilum eftirlitsgögnum, bjóðum hagsmunaaðilum að heimsækja starfsstöðvar okkar og störfum samkvæmt ströngum umhverfisstöðlum. Við styrkjum íþróttafélög og æskulýðsstarfsemi á staðnum vegna þess að þetta eru börnin okkar og samfélagið okkar. Jafnframt leitumst við til að versla í heimabyggð og ráða fólk til starfa hér á svæðinu. Arctic Fish starfar í harðri alþjóðlegri samkeppni. Kostnaðarstýring og skilvirkni skipta máli. Á sama tíma skiljum við að gervigreindarbyltingin og sjálfvirkni munu móta vinnumarkaði. Sum hefðbundin störf munu hverfa. Það gerir það því enn mikilvægara að ný störf sem koma frá tækni, sjávarútveg og nýsköpun á svæðinu, haldi áfram að vera staðsett hér á Vestfjörðum og við sjáum nú þegar þá þróun með tilkomu fleiri tæknifyrirtækja og sérhæfðra þjónustuaðila sem eru að koma sér fyrir á svæðinu. Fiskeldi sem atvinnugrein stendur andspænis vel fjármagnaðri alþjóðlegri andstöðu, oft fjarri samfélögunum sem verða fyrir beinum áhrifum. Ef kröfur um að hætta rekstri næðu fram að ganga þyrftu hluthafar taka á sig tap, en flestir myndu ná sér á strik. Aftur á móti myndi raunverulegra áhrifa gæta á staðnum. Húseigendur myndu sjá fasteignaverð lækka. Fjölskyldur myndu missa stöðuga vinnu og ungt fólk myndi enn og aftur yfirgefa svæðið. Ábyrgt fiskeldi er ekki bara atvinnugrein hér á svæðinu. Það er hluti af víðtækari viðleitni til að tryggja að afskekkt samfélög geti dafnað í alþjóðlegu hagkerfi. Ábyrgð okkar hjá Arctic Fish er skýr. Við störfum með gagnsæi, sköpum verðmæti fyrir hluthafa á sjálfbæran hátt, tryggjum innihaldsrík störf og erum ábyrg gagnvart fólkinu sem býr hér. Það er það sem samfélagslegt umboð í raun þýðir á Vestfjörðum. Höfundur er forstjóri Arctic Fish. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjókvíaeldi Byggðamál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar