Hörmuleg vika fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 12:01 Erling Haaland og félagar í Manchester City töpuðu 3-0 á móti Real Madrid og eru svo gott sem úr leik. Getty/Diego Souto Sex ensk lið eru með í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en eftir hörmulega viku er líklegt að fá þeirra verði enn á lífi eftir seinni leikina.
Ekkert enskt félag náði nefnilega að vinna sinn leik í Meistaradeildinni og þar af töpuðu fjögur þeirra. Einu liðin sem töpuðu ekki voru Arsenal og Newcastle sem bæði gerðu jafntefli, Arsenal á útivelli en Newcastle á heimvelli þar sem Barcelona jafnaði í uppbótartíma. Manchester City, Chelsea og Tottenham töpuðu öll með þremur mörkum og þurfa kraftaverk á heimavelli til þess að snúa einvígunum við. The Premier League has had a rough time through the first two days of the Champions League knockout round 😬 🤝 Arsenal draw 1-1 after an 89th-minute penalty❌ Liverpool lose 1-0 to Galatasaray for the second time this season❌ Manchester City lose 3-0 to UCL rivals Real… pic.twitter.com/Z44RZVBMDg— ESPN FC (@ESPNFC) March 11, 2026 Liverpool tapaði með einu marki en á seinni leikinn á Anfield þar sem Evrópukvöldin eru oft engu öðru lík. Þegar kemur að sigurlíkum hafa knattspyrnutölfræðingar Opta reiknað þær út eftir þessa fyrri leiki. Arsenal stendur langbest að vígi með 78 prósent líkur á sæti í átta liða úrslitunum og Liverpool er einnig yfir fimmtíu prósent með 54 prósent sigurlíkur. Sigurlíkur ensku félaganna, áður en fyrri leikurinn var spilaður og svo núna þegar seinni leikurinn er framundan.BBC Sport Hin fjögur liðin eru langt undir fimmtíu prósent og þrjú þeirra eru með undir tíu prósent sigurlíkur. Tottenham stendur langverst en aðeins þrjú prósent líkur eru á því að liðið nái að snúa við einvíginu á móti Atletico Madrid eftir 5-2 tap í fyrri leiknum. Chelsea (7 prósent) og Manchester City (9 prósent) eru líka þremur mörkum undir og útlitið er því svart hjá þeim en þetta var í fyrsta sinn sem tvö ensk lið tapa með þremur mörkum eða meira á sama kvöldi í Meistaradeildinni. Það eru síðan 32 present líkur á því að Newcastle fari til Barcelona og slái heimamenn út.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira