Raunveruleg svik við fullveldi þjóðarinnar Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 10. mars 2026 20:02 Umræða um Evrópusambandið hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum upp á síðkastið ekki síst eftir að ríkisstjórnin lagði fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst. Þetta er auðvitað mjög varkár leið að biðja þjóðina um leyfi til að fara í samningsviðræður, sem svo verður möguleiki á að hafna í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, og hefur víst ekki þekkst annars staðar í álfunni. Samt eru margir hræddir. Hræðsluáróður stjórnarandstöðunnar er áberandi og gleypa margir við honum gagnrýnislaust. Þar fer hæst staðhæfing um að aðildaviðræður séu ekkert annað en aðlögunarferli og fólk gefur sér að það muni síðan óhjákvæmlilega leiða til inngöngu. Þetta er auðvitað klassísk rökvilla stundum nefnd snjóboltarökvilla. Þú gerir ráð fyrir því að með því að gefa litla putta sértu þegar búin að gefa alla hendina. Sem er auðvitað alls ekki það sem er í gangi. Sú staðreynd að Noregur hefur tvisvar hafnað inngöngu í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir aðildaviðræður ætti að vera næg staðfesting á því að það er vel mögulegt. Upphaf aðildaviðræðna eða endurskilgreining og þróun á fyrri aðildaviðræðum segir ekkert til um hvort þjóðin munia ð lokum samþykkja inngöngu. Það ræðst af samningnum sem við fáum og hvort íslenska þjóðin telji hann bæta hag íslensku þjóðarinnar. Það verður gert með þjóðaratkvæðagreiðslu síðar meir. Að hafna aðildaviðræðum fyrirfram á grundvelli rökvillu og hræðslu við að við missum sjálfstæði okkar og fullveldi ef við ákveðum síðar að samþykkja samninginn og ganga inn er ansi sérstakt. Í fyrsta lagi þurfum við að rökstyðja það að lönd sem fara í samvinnu um lög og reglur séu ekki fullvalda. Einfalt er að hugsa sér lönd eins og Þýskaland eða Belgíu, Liháen eða Lúxemborg og spyrja sig hvort maður líti á þau lönd eitthvað minna fullvalda en Ísland. Ég hef alla vega alltaf litið á þessi lönd og önnur í ESB sem fullvalda þótt þau séu í alþjóðasamvinnu. Í öðru lagi þurfum við að spyrja okkur hvort Ísland sé í raun fullvalda og hverjir það séu sem hagnast til dæmis á íslensku krónunni og vöxtum og verðbólgu sem henni fylgja. Það er alla vega ekki almenningur. Nærtækast er að nefna húsnæðislán Íslendinga. Þar erum við í ruglinu gagnvart almenningi eins og margir hafa þegar lýst. Kvótakóngar og fjármagnseigendur eru þeir sem græða á fyrirkomulaginu eins og það er í dag. Í þriðja lagi erum við nú þegar aðilar að 70-80% löggjafar Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn svo í raun verða ekki svo miklar breytingar annað en það að við fáum loksins sæti við borðið eða atkvæðarétt. Auðvitað eru málefni auðlinda hvort sem það er í sjávarútvegi eða landbúnaði mikilvæg og ég leyfi mér að trúa að verði samningurinn ekki hagstæður almenningi hvað það varðar verði honum að lokum hafnað. Alla hefur utanríkisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar fullyrt það að hún muni hafna samningi sem er ekki hagstæður fyrir Ísland. Í raun er það merki um fullveldi þjóðar að treysta henni til að kjósa um lokasamning eftir aðildaviðræður. Svikin við fullveldið er ekki að hefja aðildaviðræður eða að leggja samninginn í dóm þjóðaratkvæðargreiðslu. Spurningin snýst um hvort við viljum vinna fyrir hagsmuni fjármagnseigenda og kvótakónga eða hvort við viljum kanna möguleika fyrir almenning og fyrirtæki. Talandi um rökvillur þá er mótsögn atjórnarandstöðunnar hrópandi. Hún barðist með kjafti og klóm í sumar með landsmeti í málþófi gegn því að þjóðin fengi sanngjarnan skerf af auðlindum í gegnum veiðsgjöld. En núna er henni rosalega mikið umhuga um að þjóðin fái arð af auðlindum. Hvort er það? Viltu að þjóðin fái arð af auðlindum eða ekki? Viltu láta rökvillur, mótsögn og hræsluáróður koma í veg fyrir að þú getir kosið um lokasamning í þjóðaratkvæðagreiðslu og metið sjálf/t/ur hvort þú telur þetta vera þína hagsmuni? Viltu leyfa fjármagnseigendum og kvótakóngum mata ofan í þig þeirra eigin hagsmunum? Erum við þá raunverulega fullvalda? Gæti verið að við verðum meira fullvalda ef við fáum að kjósa sjálf og vera í samvinnu með öðrum löndum í framtíðinni í stað kvótakónga? Hefurðu hugleitt það? Í lokin vil ég taka undir áskorunum á ríkisstjórnina um að taka upp niðurstöður þjðóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá aftur. Auðvitað væri það sterkari og öruggari staða ef við hefðum auðlindaatkvæði nýrrar stjórnarskrár sem grundvöll áður en við færum í samningsviðræður við ESB. En er það sannfærandi að þeir sem helst voru á móti nýrri stjórnarskrá og stóðu gegn því á þingi séu líka á móti inngöngu í ESB? Vilja þeir í raun auðlindir í almannaeigu eða eru þeir hræddir við að ESB muni kannski færa þjóðinni stærri hlut af auðlindunum en nú er? Viljum við ofbeldissamband við kvótakóngana áfram eða viljum við samvinnu fullvalda þjóða? Höfundur er heimspekikennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar