Eini Ólympíufari Írana kemst ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2026 22:47 Fáni Írans var tekinn úr fánaröðinni á setningarhátíð Vetrarólympíumóts fatlaðra en hér sést þegar Íran kom inn á setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna á dögunum. Getty/Xavier Laine/ Íraninn Aboulfazl Khatibi keppir ekki á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina og það þýðir að Íran mun ekki taka þátt í leikunum.
Khatibi var eini keppandi þjóðarinnar en hann kemst ekki á öruggan hátt til Ítalíu vegna vaxandi stríðsátaka í Mið-Austurlöndum, að því er Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra staðfesti. Tilkynningin um að Aboulfazl Khatibi muni ekki keppa kom aðeins nokkrum klukkustundum fyrir setningarhátíðina í Veróna. Leikarnir hófust innan við viku eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu hernaðarárás á Íran. „Vegna yfirstandandi átaka í Mið-Austurlöndum getur keppandinn, sem tók þátt á Ólympíumóti fatlaðra í Pyeongchang 2018 og Peking 2022, ekki ferðast á öruggan hátt til Ítalíu,“ sagði Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra. Andrew Parsons, forseti IPC, sagði að skipuleggjendur Ólympíumótsins hefðu „unnið sleitulaust á bak við tjöldin“ með Ólympíumótsnefnd fatlaðra í Íran að því að „finna aðrar leiðir fyrir örugga ferð írönsku sendinefndarinnar á leikana“. Hann sagði hins vegar að „vegna yfirstandandi átaka í Mið-Austurlöndum væri hættan á manntjóni of mikil“. BREAKING | According to the IPC, two-time Para cross-country skier Aboulfazl Khatibi Mianaei of Iran will not be able to compete at Milano Cortina 2026 due to travel safety. pic.twitter.com/5zyHtdCBZQ— CBC Sports (@cbcsports) March 6, 2026 Parsons sagði að samskipti við Ólympíumótsnefnd fatlaðra í Íran hefðu ekki verið auðveld þar sem fjarskiptakerfi lægju niðri víða um landið. „Það er átakanlegt fyrir íþróttamanninn að geta ekki keppt á Vetrarólympíumóti fatlaðra vegna aðstæðna sem hann hefur enga stjórn á, eftir margra ára þjálfun og elju, og við vottum Aboulfazl samúð okkar á þessum erfiðu tímum,“ sagði Parsons. Khatibi átti að keppa í tveimur greinum í paraskíðagöngu sem hefst í næstu viku. Tilkynnt hafði verið að hann yrði fánaberi Írans en hann ætlaði þó ekki að bera fánann sjálfur; sjálfboðaliðar munu sinna því verkefni fyrir allar þjóðir þar sem ekki allir fánaberar komast á hátíðina vegna skipulags- og þjálfunarástæðna. Fáni Írans var því fjarlægður úr skrúðgöngu þjóðanna á setningarhátíðinni. Iran will not compete at the Milano Cortina 2026 Paralympic Winter Games due to travel safety concerns amid the ongoing conflict in the Middle East.https://t.co/6R1h43OVUs— 7News DC (@7NewsDC) March 7, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Fleiri fréttir „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Sjá meira