Alvöru inniveður um helgina Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. mars 2026 21:18 Siggi Stormur hvetur landsmenn til að halda sig inni um helgina. Vísir/Vilhelm Veður um allt land verður vetrarlegt um helgina að sögn veðurfræðings. Hann segir alvöru inniveður í vændum og gott veður ekki í boði fyrr en eftir helgi, þó að það verði líklega skást á Norðausturlandi. „
Snemma í fyrramálið þá taka við hríðar- og vindaviðvaranir eiginlega frá Snæfellsnesi og Breiðafirði og yfir á norðanvert landið, rétt sem Þannig að það er, það er virkilega hvasst í þessu,“ segir Sigurður Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, sem ræddi veðrið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Nú sé djúp lægð suðvestur af landinu sem sendi yfir landsmenn óstöðugt loft og útskýri þrumuveðrið sem gerði mörgum lífið leitt í dag. Úrkoma um mestallt land „Það er mjög hvasst víðast hvar á landinu og helgin stefnir í afskaplega svipað veðurlag, það er að segja, að það má reikna með því að það verði úrkoma um mestallt land, svona í grófum dráttum. Það verður skást á Norðausturlandi en síðan með hækkandi hæð er hætt við slyddu eða jafnvel snjókomu.“ Þannig að það er hundleiðinlegt veður í kortunum núna um helgina? „Já, ég er raunverulega að segja það að þetta er svona inniveður og annað í þessu sem rétt er að hafa í huga að jafnvel þó að hitinn sé sums staðar svona ágætur að deginum núna, svona inn í helgina, þá er að kólna um helgina og þá má reikna með að það verði víða snjókoma eða él og mér sýnist á öllu að helgin fari í þetta, að koma þessu burtu og jafnvel verður það ekki fyrr en á þriðjudag sem þetta fer að verða skaplegra á nýjan leik. Þannig að ég myndi segja að fólk ætti nú að fara í það að mála bara inni eða taka til eða eitthvað heldur en að vera mikið úti í þessu veðri þó að þetta sé ekkert kannski hættulegt.“
Reykjavík síðdegis Veður Tengdar fréttir Truflanir víða vegna eldingaveðurs Truflanir á rafmagni og hitaveitu eru víða á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingaveðurs. Þá var lágur þrýstingur síðdegis á heita vatninu í Hveragerði og Þorlákshöfn og fleiri stöðum vegna rafmagnstruflana. Þá hefur sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í Mosfellsbæ og Garðabæ verið lokað vegna veðurs. 6. mars 2026 16:46 Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Mikill vatnselgur hefur myndast á veginum undir brúnni neðst í Ártúnsbrekku. Vatnið er djúpt á veginum, eins og meðfylgjandi mynd sýnir glögglega. Vegfarendur þurfa að sýna varúð en töluverðar leysingar eru á höfuðborgarsvæðinu. 6. mars 2026 16:31 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira
Truflanir víða vegna eldingaveðurs Truflanir á rafmagni og hitaveitu eru víða á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingaveðurs. Þá var lágur þrýstingur síðdegis á heita vatninu í Hveragerði og Þorlákshöfn og fleiri stöðum vegna rafmagnstruflana. Þá hefur sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í Mosfellsbæ og Garðabæ verið lokað vegna veðurs. 6. mars 2026 16:46
Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Mikill vatnselgur hefur myndast á veginum undir brúnni neðst í Ártúnsbrekku. Vatnið er djúpt á veginum, eins og meðfylgjandi mynd sýnir glögglega. Vegfarendur þurfa að sýna varúð en töluverðar leysingar eru á höfuðborgarsvæðinu. 6. mars 2026 16:31