Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2026 21:01 Garðar Ingi Sindrason sá um að jafna metin fyrir FH undir lokin og þá var enn tími fyrir sigurmark. Vísir/Hulda Margrét FH-ingar skoruðu tvö mörk á lokamínútunni og tryggðu sér magnaðan, eins marks sigur gegn Aftureldingu í Kaplakrika í kvöld, 30-29, í Olís-deild karla í handbolta. HK vann Selfoss 38-31.
FH-ingar voru án þjálfarans Sigursteins Arndal vegna leikbanns sem hann fékk eftir bikarleikinn við Hauka í síðustu viku, og var aðstoðarþjálfarinn Aron Pálmarsson því við stjórnvölinn ásamt Einari Andra Einarssyni. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en Afturelding komst þó í 24-21 um miðjan seinni hálfleik. Á lokamínútunum skiptust liðin hins vegar á að vera yfir og komst Afturelding í 29-28 þegar mínúta var eftir. Garðar Ingi Sindrason rauk þá fram og jafnaði metin og Jakob Martin Ásgeirsson stal svo boltanum og tryggði FH hádramatískan sigur úr hraðaupphlaupi. Garðar Ingi var markahæstur hjá FH í kvöld með sex mörk en Ihor Kopyshynskyi og Kristján Ottó Hjálmsson markahæstir Aftureldingar með sjö mörk hvor. FH komst með sigrinum upp fyrir Hauka í 2. sæti, og er með 29 stig eftir 20 leiki. Afturelding er í 5. sæti með 25 stig. HK skildi Selfoss eftir við fallsvæðið Sigur HK-inga var öllu öruggari, gegn Selfossi, en honum lauk með sjö marka mun. Hjörtur Ingi Halldórsson og Ágúst Guðmundsson skoruðu átta mörk hvor fyrir HK en Hákon Garri Gestsson var markahæstur hjá Selfossi með tíu mörk. HK kom sér þar með í 14 stig í 8. sætinu en Selfoss situr eftir með 11 stig í 10. sæti og gæti misst Stjörnuna upp fyrir sig annað kvöld.
Olís-deild karla FH Afturelding HK UMF Selfoss Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Sjá meira