Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Birgir Olgeirsson skrifar 5. mars 2026 13:47 Finnbjörn Hermannsson er forseti ASÍ. Vísir/Arnar ASÍ mun ekki taka þátt í umræðum um niðurskurðaraðgerðir á velferðarkerfinu til að ná tökum á verðbólgu. Forseti ASÍ vill að horft sé til hinna breiðu baka í samfélaginu til að ná tökum á ástandinu svo forsendur kjarasamninga standist í haust.
Tólf mánaða verðbólga var 5,2% í febrúar, óbreytt milli mánaða, þvert á spá Íslandsbanka og Landsbankans um lækkun undir 5%. Langtímakjarasamningar sem gerðir voru 2024 og gilda til 2028 hafa forsenduákvæði. Annars vegar skoðun í september 2025 sem stóðst því 12 mánaða verðbólga var undir 4,95%, og hins vegar í september 2026 en þá þarf verðbólga að vera undir 4,7%, annars má segja samningum upp nema semjist sé um viðbrögð. Ljóst er að ærið verkefni bíður ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur svo forsenduákvæði kjarasamninga haldi. Vísir/Vilhelm Forseti ASÍ segir efnahagshorfur þungar og að ástandið í alþjóðamálum sé ekki til að bæta stöðuna. Þeir aðilar sem ætluðu að spila með til að halda aftur af verðbólgu hafi ekki gert það eftir að langtímakjarasamningarnir voru undirritaðir árið 2024. „Við værum í annarri aðstöðu ef bankarnir, bensínsölumenn, matvaran, sveitarfélögin og ríkið hefðu spilað með okkur. En það gerðist ekki og þá sitjum við uppi með verðbólgu sem er óásættanleg og það eru ekki góðar horfur fram undan,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ. Ríkið sitji að matarholum Ríkisstjórnin hafi boðað að hún ætli í viðtöl við aðila vinnumarkaðarins en Finnbjörn segir að þær viðræður séu á byrjunarreit en ekki hafnar formlega. „Ef það er hægt að grípa til einhverra aðgerða þá erum við tilbúin að hlusta en það sem við erum ekki tilbúin að skoða er einhvers konar niðurskurður á velferðarkerfinu. Það er alltaf verið að tala um að við séum í innviðaskuld út af velferðarkerfinu og við eigum frekar að bæta í það en hitt. Við getum séð einhverja hluti sem er hægt að fara betur með. Við skoðum það ef það er hægt að gera betur án þess að það bitni á almenningi en það eru matarholur sem ríkið á til að fara í ef það vantar fjármagn í ríkiskassann,“ segir Finnbjörn. Leggur til frekari hátekjuskatta ASÍ hafi margbent á að hægt sé að horfa til hinna breiðu baka til að taka á þessu ástandi. „Það er hægt að fara í hátekjuskatt, fjármagnstekjuskatt og stóreignaskatt, að fara á þessi breiðu bök sem halda uppi einkaneyslunni,“ segir Finnbjörn sem bendir á að ástandið í efnahagsmálum skrifist ekki á lágtekjufólk. Finnbjörn telur breiðu bökin halda uppi einkaneyslu sem ýti undir verðbólgu. Að hans mati skrifist það ekki á meðaltekju- og láglaunafólk. Vísir/Vilhelm „Þetta er farið að verða veruleg misskipting í samfélaginu sem við viljum leiðrétta og það gerist ekki öðruvísi en með því að fara í þá aðila sem halda uppi einkaneyslunni. Það eru augljóslega matarholur þar en þær eru ekki hjá meðaltekjumanninum eða lágtekjufólkinu.“ Samningsaðilar hafi ekki verið samtaka En er hægt að berjast við verðbólgu án þess að draga úr útgjöldum? „Ríkissjóður þarf að vera í jafnvægi og það gerist annaðhvort með því að draga úr útgjöldum eða bæta í tekjuhliðina og við erum frekar að horfa í að bæta tekjuhliðina heldur en hitt, án þess að það fari út í neyslu hjá ríkinu,“ segir Finnbjörn. Hann segir vinnumarkaðinn hafa lagt mjög mikið til með því að gera langtímasamninga árið 2024 sem talið var að myndu verða þess valdandi að allir aðilar myndu róa að sama markmiði um að ná böndum á verðbólgunni. „En það hefur bara ekki gerst og þess vegna erum við 5,2% verðbólgu í augnablikinu. Ef þeir aðilar sem áttu að vera með okkur í þessu hefðu tekið sinn skerf þá værum við ekki á þessum stað. Það verður líka að horfa í það þegar aðgerðir eru skoðaðar.“
ASÍ Vinnumarkaður Kjaramál Verðlag Tengdar fréttir Hagkerfið allt í hættu „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. 3. mars 2026 13:12 Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira
Hagkerfið allt í hættu „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. 3. mars 2026 13:12