Líknarmeðferð og dánaraðstoð: ekki andstæður Ingrid Kuhlman skrifar 7. mars 2026 08:01 Á síðustu misserum hefur umræða um meðferð og umönnun við lífslok og sjálfræði fólks orðið sýnilegri á Íslandi. Í því samhengi er fróðlegt að líta til Skotlands, þar sem nýlega var fjallað um tengsl líknarmeðferðar og dánaraðstoðar. Í október síðastliðnum birti Kathleen Robson grein um þessi mál og á sú umfjöllun erindi langt út fyrir landamæri Skotlands. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er líknarmeðferð heildræn nálgun sem miðar að því að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra sem standa frammi fyrir lífshættulegum sjúkdómum. Hún felur í sér að fyrirbyggja og draga úr þjáningu með snemmbærri greiningu, réttu mati og meðferð á verkjum og öðrum einkennum, hvort sem þau eru líkamleg, sálfélagsleg eða andleg. Þörf fyrir líknarmeðferð í Skotlandi Árið 2021 létust rúmlega 56 þúsund manns í Skotlandi sem talið er að hafi haft þörf fyrir líknarmeðferð, eða um 90% allra andláta. Spár gera ráð fyrir að þessi tala muni hækka um 12% fram til ársins 2040, einkum vegna hækkandi meðalaldurs og fjölgunar fólks með langvinna og margþætta sjúkdóma. Flestir sem þurfa líknarmeðferð glíma við hjarta- og æðasjúkdóma (38,5%), krabbamein (34%) eða langvinna lungnasjúkdóma (10,3%). Algeng einkenni eru sársauki, mæði og þreyta, en einnig flókin einkenni á borð við óráð, ógleði, þunglyndi og garnastíflu. Talið er að um einn af hverjum fjórum Skota fái ekki þá líknarþjónustu sem þörf er á. Þetta jafngildir um 14.000 einstaklingum á ári. Helstu áskoranir eru meðal annars: ójafnt aðgengi að sérhæfðri þjónustu, sérstaklega fyrir fólk með aðra sjúkdóma en krabbamein. landfræðilegur og félagslegur mismunur, einkum í dreifbýli, meðal minnihlutahópa og á efnaminni svæðum. mikil ábyrgð á almennum heilbrigðisstarfsmönnum sem oft skortir viðeigandi þjálfun í líknarmeðferð. takmarkaður stuðningur við umönnunaraðila og skortur á samþættingu þjónustu, sérstaklega utan hefðbundins vinnutíma. Stefna Skotlands í líknarmeðferð Í september 2025 kynnti skoska ríkisstjórnin fyrstu formlegu líknarstefnu landsins fyrir tímabilið 2025-2030. Hún byggir á tveimur meginmarkmiðum: annars vegar að Skotland verði samfélag þar sem fólk getur stutt hvert annað til að lifa sem best með lífsógnandi sjúkdóma, og hins vegar að allir fái líknarmeðferð og stuðning í samræmi við það sem þeim skiptir mestu máli. Um 90% umönnunar síðustu sex mánaða ævinnar í Skotlandi fer fram utan heilbrigðisstofnana. Þrátt fyrir það verða flest andlát á sjúkrahúsum (46%), um þriðjungur heima og nær fimmtungur á hjúkrunarheimilum. Þetta misræmi undirstrikar mikilvægi þess að efla samþætta, samfellda og aðgengilega líknarmeðferð í nærumhverfi fólks. Tengsl líknarmeðferðar og dánaraðstoðar Við fyrstu umræðu um frumvarpið um dánaraðstoð, Assisted Dying for Terminally Ill Adults, komu fram tvær meginspurningar: annars vegar hvort ófullnægjandi líknarmeðferð ýti undir beiðnir um dánaraðstoð, og hins vegar hvort lögleiðing dánaraðstoðar geti grafið undan gæðum og aðgengi að líknarmeðferð. Rannsóknir sýna að meirihluti þeirra sem óska eftir dánaraðstoð eru þegar í líknarmeðferð. Margir líta á dánaraðstoð sem viðbót við líknarmeðferð fremur en valkost sem sprettur af skorti á henni. Í Kanada og Oregon hefur verið safnað gögnum um ástæður fólks fyrir ósk um dánaraðstoð. Þar kemur meðal annars fram að hægt er að bregðast við ákveðnum áhyggjum, svo sem ófullnægjandi verkjastilling eða ótti við framtíðarþjáningu, með vandaðri og tímanlegri líknarmeðferð. Sumir óttast að dánaraðstoð dragi fjármagn og athygli frá líknarmeðferð. Reynslan frá Kanada bendir hins vegar til hins gagnstæða. Eftir lögleiðingu dánaraðstoðar hefur fjárfesting í líknarmeðferð aukist, meðal annars með bættri mönnun, eflingu heimahjúkrunar og fjölgun líknarrýma. Aðrar rannsóknir benda jafnframt til þess að lögleiðing dánaraðstoðar geti stuðlað að bættri lífslokameðferð og aukinni umræðu um meðferðarmarkmið og framtíðaráætlanir. Áhrifin virðast að stórum hluta ráðast af því hversu vel dánaraðstoð er samþætt annarri heilbrigðisþjónustu. Þar sem samþættingin hefur tekist vel, til dæmis í Kanada og Ástralíu, telja heilbrigðisstarfsmenn sig betur í stakk búna til að styðja sjúklinga á heildrænan hátt, óháð því hvort dánaraðstoð verði fyrir valinu eða ekki. Löggjöf og efling líknarmeðferðar Í nokkrum Evrópulöndum hefur líknarmeðferð verið efld samhliða umræðu um lagabreytingar um dánaraðstoð. Í Belgíu var árið 2002 tryggður almennur réttur til líknarmeðferðar og fjárveitingar tvöfölduðust á næsta áratug. Frakkland og Þýskaland hafa einnig styrkt líknarmeðferð samhliða pólitískri umræðu um dánaraðstoð. Tryggjum öllum raunverulegt val við lífslok Reynsla Skotlands og annarra landa sýnir að líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur samofnir þættir í umræðu um lífslok, sjálfræði og mannlega reisn. Þessi reynsla getur einnig veitt mikilvæga innsýn fyrir þá umræðu sem á sér stað á Íslandi. Kjarni málsins er að tryggja öllum raunverulegt val og umönnun sem tekur mið af gildum þeirra, þörfum og óskum við lífslok. Í þeirri umræðu ætti meginmarkmiðið alltaf að vera hið sama: að fólk geti lokið lífi sínu með eins mikilli reisn, stuðningi og sjálfræði og kostur er. Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar