Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 08:17 Morgan Gibbs-White fagnar hælspyrnumarki sínu fyrir Nottingham Forest á móti Manchester City í gær. Getty/Visionhaus Arsenal er komið með sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir hagstæð úrslit í leikjum gærkvöldsins en nú má horfa á mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi.
Glæsimark frá Elliot Anderson, leikmanni Nottingham Forest, reyndist afdrifaríkt fyrir möguleika Manchester City í baráttunni um titilinn. 2-2 jafntefli gegn liði sem er í fallhættu var ekki nóg fyrir City, þeir þurftu að vinna til að hafa örlögin í eigin höndum í kapphlaupinu um úrvalsdeildartitilinn. Klippa: Sjáðu markið úr leik Arsenal og Brighton Nú hafa þeir afhent Arsenal frumkvæðið, en Arsenal vann 1-0 sigur á Brighton á sama tíma með marki frá Bukayo Saka strax á níundu mínútu. Kvöldið byrjaði vel fyrir heimamenn í City með marki frá Antoine Semenyo en eftir hlé jöfnuðu gestirnir metin þegar Morgan Gibbs-White skoraði með laglegri hælspyrnu. Spánverjinn Rodri skallaði boltann í netið og kom City yfir í 2-1 en það dugði þó ekki fyrir City sem þurfti að lokum að sætta sig við jafntefli þökk sé frábæru skoti frá hinum efnilega Anderson. Klippa: Sjáðu mörkin úr leik Manchester City og Nottingham Forest Joao Pedro skoraði þrennu í 4-1 sigri Chelsea á Aston Villa en með sigrinum fór Chelsea upp fyrir Liverpool og í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Aston Villa, sem er í þriðja sæti, tók forystuna með marki frá Douglas Luiz eftir þrjár mínútur á miðvikudaginn en þá vaknaði Chelsea. Cole Palmer var líka á skotskónum. Klippa: Sjáðu mörkin úr leik Newcastle og Manchester United Það var mikil dramatík þegar Newcastle vann Manchester United 2–1 á St. James´s Park. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks tók leikurinn heldur betur að lifna við. Fyrst fékk Jacob Ramsey reisupassann eftir að hafa reynt að fiska vítaspyrnu með leikaraskap. Aðeins mínútum síðar fékk Newcastle vítaspyrnu og Anthony Gordon skoraði af öryggi úr spyrnunni. Dramatíkinni í fyrri hálfleik var þó langt frá því að vera lokið: Á níundu mínútu uppbótartíma var komið að hornspyrnu þar sem Casemiro stökk hæst allra og jafnaði metin í 1–1 fyrir hálfleik. Í seinni hálfleik varðist Newcastle hetjulega og sérstaklega átti Aaron Ramsdale fjölda frábærra markvarslna. Undir blálokin á leiknum tryggði danski sóknarmaður Newcastle, William Osula, síðan heimamönnum sigurinn. Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr þessum leikjum. Klippa: Sjáðu mörkin úr leik Aston Villa g Chelsea Klippa: Sjáðu markið úr leik Fulham og West Ham
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Manchester United Newcastle United Aston Villa FC Brighton & Hove Albion Nottingham Forest West Ham United Fulham FC Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira