Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu hann í flug Eiður Þór Árnason skrifar 4. mars 2026 18:49 Vettvangur meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í Reykholti. Vísir Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.
RÚV greinir frá þessu og vísar í ákæru sem þingfest verður í Héraðsdómi Suðurlands síðar í mánuðinum. Sakborningarnir sex eru Íslendingar, þar af ein kona, og eru þau tengd fjölskylduböndum. Fórnarlambið er með maltneskt ríkisfang en er sagt ættað frá Palestínu. Elsti sakborningurinn er á sjötugsaldri en sá yngsti um þrítugt. Þrjú þeirra eru sögð hafa ráðist inn á heimili mannsins. Málið vakti mikla athygli árið 2024 en það kom á borð lögreglu eftir tilkynningu um að ekki hefði náðst í maltneskan karlmann búsettum í Biskupstungum í nokkra daga. Tveimur dögum síðar bárust lögreglu upplýsingar um að maðurinn hefði fundist á Möltu, illa haldinn og með áverka víðs vegar um líkamann. Fjögur voru handtekin. Hin handteknu voru karlmaður á áttræðisaldri, dóttir hans og tengdasonur um þrítugt auk bróður tengdasonarins. Áður hafði verið greint frá því að konan væri grunuð um að hafa skipulagt ofbeldið. Nú kemur fram í ákæru að fórnarlambinu hafi meðal annars verið hótað að siglt yrði með hann til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis, að sögn RÚV. Fengið starfsmann til að setja upp rafræn skilríki Einnig er sakborningum gert að hafa blekkt starfsmann í verslun Símans til að setja upp rafræn skilríki í síma mannsins. Þá hafi þau keypt flugmiða til Parísar og þaðan áfram til Möltu í nafni mannsins og síðan millifært 17,6 milljónir af reikningi hans. Eftir það hafi honum verið fylgt á Keflavíkurflugvöll og hótað að dóttur hans yrði gert mein ef hann færi ekki um borð, að því er fram kemur í frétt RÚV. Á Möltu hafi svo komið í ljós að hann var meðal annars með fjögur brotin rifbein, blæðingu í framheila, nef- og puttabrotinn og vantaði fimmtán tennur.
Fjárkúgun í Reykholti Mest lesið Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Erlent Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent „Við ætlum ekki að líða þetta“ Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Innlent Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Innlent Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Innlent Fleiri fréttir Önnur hver stelpa beðin um nektarmyndir og fær klámfengin skilaboð Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Engin leið að koma sér í björgunarferðir Hraðlygni leiðsögumaðurinn ekki einsdæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“ Leikskólastjóri og fyrrverandi fótboltamaður fram fyrir Miðflokkinn Reyndi að kveikja í bíl Grásleppufrumvarpið samþykkt Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Rannsaka frelsissviptingu og fíkniefnavörslu „Við ætlum ekki að líða þetta“ Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Lögregla bankar upp á vegna hótana í garð ráðamanna Bein útsending: Ræða upplýsingaóreiðu og netógnir í aðdraganda kosninga Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Ráðherra friðlýsti Grafarvoginn Brynjar ráðinn korter í kosningar Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Þau skipa D-listann í Hveragerði Rósa í heiðurssæti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Niðurstöður samræmdu prófanna birtar eftir skólum Ummæli kanslara kaþólikka gagnrýnd og átján Íslendingar vilja far með björgunarvélum Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Leituðu skjóls í Hreysinu Bein útsending: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi Sjá meira