Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2026 18:03 Jack Fletcher leikur með U-19 ára landsliði Englands þrátt fyrir að faðir hans hafi spilað fyrir Skotland. getty/Robbie Jay Barratt Jack Fletcher, leikmaður Manchester United, hefur verið dæmdur í sex leikja bann vegna hómófóbískra ummæla í garð mótherja.
Fletcher, sem er sonur Darrens Fletcher, fyrrverandi leikmanns og núverandi þjálfara hjá United, var rekinn af velli í 5-2 sigri á Barnsley í bikarkeppni U-21 ára liða í október síðastliðnum. Þá lá ekki fyrir af hverju Fletcher fékk rauða spjaldið. Enska knattspyrnusambandið hefur nú staðfest að hann hafi verið rekinn út af fyrir að kalla mótherja hommastrák. „Ég biðst innilegrar afsökunar á þeim meiðandi ummælum sem ég lét falla í hita leiksins,“ sagði Fletcher. „Ég er fullmeðvitaður um að slík ummæli eru óásættanleg og ég baðst afsökunar strax eftir leikinn.“ Tvíburabróðir Jacks, Tyler, spilaði einnig leikinn gegn Barnsley. Faðir þeirra var svo í stúkunni. Samkvæmt skriflegu svari Jacks til enska knattspyrnusambandsins hafði mótherjinn talað ítrekað um þá feðga á meðan leik stóð sem reitti hann til reiði. Þá hafði sami mótherji hrint Jack og traðkað á hásin hans fyrr í leiknum. Jack, sem er átján ára, hefur leikið þrjá leiki fyrir aðallið United. Darren Fletcher er þjálfari U-18 ára liðs United og stýrði aðalliðinu í tveimur leikjum eftir að Ruben Amorim var rekinn.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Sjá meira