50+: Leitin að ástinni ekki bara fyrir unga fólkið Rakel Sveinsdóttir skrifar 9. mars 2026 07:02 Ástin getur blossað upp á hvaða aldri sem er. Enda engin ástæða til að leita ekki af ástinni óháð aldri. Vísir/Getty Ástin getur blossað upp á öllum aldri. Þó er oftast talað um ástina, stefnumót, ný kynni eða rómantík með ung pör í huga eða harðgift fólk sem er að rækta sjálft sig og sitt samband.
Sá hópur sem gleymist hins vegar er hópurinn sem er kominn á efri ár, fólk sem jafnvel hefur misst maka en langar að hitta nýjan maka eða eignast lífsförunaut fyrir þau ár eða áratugi sem eftir eru. Lífaldurinn er líka að hækka og það sem áður taldist „gamalt“ fólk telst í dag hinn besti aldur! The Guardian í Bretlandi birti grein á dögunum sem er ágætis áminning um þennan hóp. Því þar er rætt við fimm konur sem segja frá sinni ástarleit; sú yngsta á sjötugsaldri og sú elsta yfir nírætt. Sögurnar þeirra eru fínt dæmi um það hvernig stefnumót og leitin að ástinni verða síst minna spennandi þótt árin færist yfir. Líka spurning um hvort þessar sögur geti ekki gefið einhverjum þarna úti innblástur, kjark og þor til að hefja sína leit? Við skulum rýna í stutta samantekt úr viðtölunum: Stella, 78 ára, hefur prófað stefnumótaforritin en finnst erfitt að mynda raunveruleg tengsl í gegnum þessi forrit. Þar séu sumir menn að leita eftir skyndikynnum á meðan hún sjálf er að leita að nánd og samveru. Ráð Stellu eru því þau að nýta frekar félagsviðburði til að kynnast fólki. Paulina er 61 árs og viðurkennir að hún getur orðið drauðþreytt á stefnumótaforritum en ætlar þó ekki að gefast upp. Það sem henni finnst hvimleiðast er þegar karlmenn birta af sér gamlar myndir, sem getur verið verulega villandi. Eða þegar það kemur í ljós að þeir hafa lítinn áhuga á raunverulegum samræðum, leitin þeirra sé frekar að yfirborðskenndari kynnum. Bonnie, 84 ára, kom út sem lesbía síðar á ævinni og byrjaði þá að leita að sambandi. Í fyrstu gekk það illa á stefnumótasíðum þar sem margir virtust ekki vera mjög virkir eða áhugasamir. Síðar kynntist hún þó Cheryl, 71 árs ekkju. Samband þeirra þróaðist hratt og Cheryl bað hennar við Eiffelturninn í París. Í dag búa þær saman og njóta lífsins. D’yan Forest er 91 árs og segist aldrei hafa misst áhugann á rómantík. Hún segir stefnumót á efri árum geta verið flókin. Sumir eldri menn geti verið mjög sjálfhverfir á meðan yngri menn hafi stundum allt aðrar væntingar en hún. Samt heldur hún áfram að leita að tengslum og segir að lífið sé of stutt til að hætta að leita að gleði og félagsskap.
50+ Tengdar fréttir 50+: Það má segja Nei við barnapössun Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun. 27. nóvember 2025 07:02 50+: Framhjáhöldum fjölgar Ýmsar vísbendingar eru um að fólk sem er fimmtugt eða eldra, haldi framhjá oftar eða í meira mæli en áður. 10. nóvember 2025 07:00 50+: Að sleppa takinu af krökkunum þegar þau eru flutt að heiman Munu þau hætta saman? Er hún/hann með einhverja stefnu um hvað hann/hún vil gera? Mun hann/hún einhvern tíma flytja aftur heim? 19. september 2025 07:02 50+: Það sem fólk sér helst eftir á dánarbeðinum Það dreymir flestum um að eiga langa og hamingjuríka ævi og eftir því sem við eldumst, verðum við betur meðvituð um hversu miklu máli það skiptir að halda heilsunni. 20. ágúst 2025 07:02 50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endilega vesen Við erum flest með ákveðna ímynd af karlmönnum með gráa fiðringinn. Sjáum þá oft fyrir okkur rembast við að reyna að halda sér mjög ungæðislegum. Stunda jafnvel ræktina af offorsi eða byrja á nýrri hreyfingu og útivist; Með stæl. 18. júlí 2025 07:02 Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Hver er maðurinn? Lífið Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Fleiri fréttir 50+: Leitin að ástinni ekki bara fyrir unga fólkið Draumalíf: Fékk Ísland á heilann átta ára Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Sjá meira
50+: Það má segja Nei við barnapössun Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun. 27. nóvember 2025 07:02
50+: Framhjáhöldum fjölgar Ýmsar vísbendingar eru um að fólk sem er fimmtugt eða eldra, haldi framhjá oftar eða í meira mæli en áður. 10. nóvember 2025 07:00
50+: Að sleppa takinu af krökkunum þegar þau eru flutt að heiman Munu þau hætta saman? Er hún/hann með einhverja stefnu um hvað hann/hún vil gera? Mun hann/hún einhvern tíma flytja aftur heim? 19. september 2025 07:02
50+: Það sem fólk sér helst eftir á dánarbeðinum Það dreymir flestum um að eiga langa og hamingjuríka ævi og eftir því sem við eldumst, verðum við betur meðvituð um hversu miklu máli það skiptir að halda heilsunni. 20. ágúst 2025 07:02
50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endilega vesen Við erum flest með ákveðna ímynd af karlmönnum með gráa fiðringinn. Sjáum þá oft fyrir okkur rembast við að reyna að halda sér mjög ungæðislegum. Stunda jafnvel ræktina af offorsi eða byrja á nýrri hreyfingu og útivist; Með stæl. 18. júlí 2025 07:02