Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 08:45 Rodrigo Gomes fagnar marki sínu fyrir Úlfana í gær með liðsfélaga sínum David Moller Wolfe. Getty/Brett Patzke Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi og það var skorað í þremur þeirra. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi.
Liðin úr Bítlaborginni, Liverpool og Everton, voru bæði að spila í gærkvöldi en úrslitin hjá þeim voru afar ólík. Klippa: Sjáðu mörkin úr leik Everton og Burnley Á meðan Everton fagnaði fyrsta heimasigri sínum á nýju almanaksári þá gengu leikmenn Liverpool enn á ný niðurlútir af velli eftir að hafa fengið á sig sigurmark í blálok leiks. Everton vann 2-0 sigur á Burnley þökk sé skallamarki James Tarkowski eftir rúmlega hálftíma leik og marki Kiernan Dewsbury-Hall á 60. mínútu. Klippa: Sjáðu mörkin úr leik Wolves og Liverpool Rodrigo Gomes kom Wolves í 1-0 á móti Liverpool en Mohamed Salah jafnaði sjö mínútum fyrir leikslok með langþráðu marki fyrir hann í ensku úrvalsdeildinni. Í stað þess að Liverpool myndi nýta eitthvað af færum sínum í lokin þá fóru Úlfarnir upp í skyndisókn og André skoraði sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Vítaspyrna Habib Diarra á 70. mínútu tryggði Sunderland 1-0 útisigur á Leeds United en sex mínútum fyrr höfðu myndbandsdómarar tekið mark af Leeds. Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr þessum leikjum. Klippa: Sjáðu markið úr leik Leeds og Sunderland
Enski boltinn Liverpool FC Everton FC Sunderland AFC Leeds United Wolverhampton Wanderers Burnley FC Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira