Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. mars 2026 13:00 Þórhallur Sverrisson í hlutverki Tóta. Í bakgrunni er Felix Bergsson í hlutverki formanns húsfélagsins sem stendur í eilífu stappi við Tóta, meðal annars vegna bílastæðamál en Tóti er ekki barnanna bestur þegar kemur að því að leggja bílnum. Vísir Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna átti bláan Suzuki Alto '86 módel sem Tóti í Íslenska draumnum ók um götur Reykjavíkur. Líf segist hafa farið í smá fýlu þegar hún fékk ekki boð á frumsýningu myndarinnar en sé sem betur fer ekki langrækin.
Íslenski draumurinn fagnaði 25 ára afmæli sínu í fyrra. Í þáttunum Stjörnubíó á RÚV kom fram að Líf hefði lánað Tóta bílinn. Hún gengst við þessu í samtali við Stefán Pálsson flokksbróður sinn á Facebook. Blái bíllinn er í lykilhlutverki í myndinni þar sem aðalsöguhetjan Tóti flakkar á milli söluturna í Reykjavík til að reyna að koma búlgörskum sígarettum á íslenskan markað. Hann verður bensínlaus, er asnalega stór fyrir litla bílinn og bíllinn er eins konar táknmynd fyrir hvernig Tóti er með allt niður um sig. Þegar Opal-sígaretturnar fara óvænt að rjúka út er Tóti ekki lengi að kveðja bláu drusluna og kaupa sér spánýjan Range Rover með einkanúmerinu Total, því Opal og Tóti eru frátekin. Utangarðsmenn sömdu lagið Íslenski draumurinn fyrir myndina en myndband við lagið má sjá að neðan. „Þetta var fyrsti bíllinn minn, sjálfskiptur Suzuki Alto '86 módel. Vinkonur mínar gerðu grín að honum og kölluðu hann saumavélina og upp úr því gaf ég honum nafnið Nálin. Líf á Nálinni,“ segir Líf. „Ég lánaði bílinn í einhverja mánuði gegn því að teymið tæki að sér að greiða stöðumælasektirnar sem ég hafði safnað enda bjó ég í miðbænum á þessum tíma. Mig minnir reyndar að ég hafi síðan gert það sjálf að lokum.“ Hún bætir því við að hafa ekki fengið boð á frumsýninguna en hún sé sem betur fer ekki langrækin. Fyrir öllu sé að aðstandendum kvikmyndarinnar vinsælu hafi tekist að gera Nálina ódauðlega og fræga. Að neðan má sjá skemmtilega senu úr myndinni þar sem formaður húsfélagsins, leikinn af Felix Bergssyni, kemur að þeim bláa sem Tóti hefur lagt í tvö stæði. Formaðurinn, langþreyttur á veseni sem fylgir nágrannanum sem aldrei greiðir í húsfélagið en vill þó kaupa þrif því ekki nennir hann að taka þátt í þrifum á sameigninni, deyr ekki ráðalaus eins og sést í myndbandinu.
Kvikmyndagerð á Íslandi Vinstri græn Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira