Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir skrifar 2. mars 2026 07:00 Þótt Ísland sé eyja í norðri ferðast afurðir raforkunnar okkar um alla heimsbyggðina. Með íslenskri raforku eru búin til verðmæti sem finnast í bílum á götum Berlínar, í vindmyllum á Norðursjó, í sólarsellum á Spáni og í rafstáli í Japan. Hún er í laxinum í búðarborðum Whole Foods og drífur gervigreindarlausnir. Verðmætin sem hér verða til eru hluti af daglegu lífi fjölda fólks víða um heim. Ástæðan er einföld: Viðskiptavinir Landsvirkjunar eru alþjóðlegir risar. Fjárhagslegur styrkur sumra þeirra jafnast á við heilu ríkin. Landsvirkjun er lítið fyrirtæki í alþjóðlegum samanburði, en við búum yfir eftirsóknarverðri auðlind. Saga Landsvirkjunar og viðskiptavina hennar er samofin saga atvinnuþróunar, verðmætasköpunar og bættra lífskjara. Við höfum vaxið saman og styrkt samkeppnishæfni hvert annars. Uppskerutíminn er fram undan Allt frá stofnun Landsvirkjunar var sýn manna sú að raforkuverðið yrði lágt í upphafi en myndi hækka þegar fram liðu stundir. Sá tími er runninn upp. Arðgreiðslur til íslensku þjóðarinnar vegna áranna 2021-2025 hafa numið samtals um 110 milljörðum króna, þökk sé farsælum endursamningum. Nú er hafið mikilvægasta endursamningaskeið í 60 ára sögu fyrirtækisins en í endursamningum felast bæði tækifæri og áskoranir. Hart er tekist á, enda eru þetta stærstu viðskiptasamningar sem gerðir eru hér á landi. Stærsti hlutinn snýr að Alcoa, sem notar þriðjung allrar raforku okkar. Markmið endursamninga er skýrt: raungera enn meiri verðmæti og fá hærra verð fyrir orkuna, íslensku þjóðinni til hagsbóta. Á ársfundi Landsvirkjunar á morgun, 3. mars, fjalla ég nánar um hvernig við ætlum að sækja fram á þessum krefjandi alþjóðamarkaði. Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tinna Traustadóttir Orkumál Landsvirkjun Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Þótt Ísland sé eyja í norðri ferðast afurðir raforkunnar okkar um alla heimsbyggðina. Með íslenskri raforku eru búin til verðmæti sem finnast í bílum á götum Berlínar, í vindmyllum á Norðursjó, í sólarsellum á Spáni og í rafstáli í Japan. Hún er í laxinum í búðarborðum Whole Foods og drífur gervigreindarlausnir. Verðmætin sem hér verða til eru hluti af daglegu lífi fjölda fólks víða um heim. Ástæðan er einföld: Viðskiptavinir Landsvirkjunar eru alþjóðlegir risar. Fjárhagslegur styrkur sumra þeirra jafnast á við heilu ríkin. Landsvirkjun er lítið fyrirtæki í alþjóðlegum samanburði, en við búum yfir eftirsóknarverðri auðlind. Saga Landsvirkjunar og viðskiptavina hennar er samofin saga atvinnuþróunar, verðmætasköpunar og bættra lífskjara. Við höfum vaxið saman og styrkt samkeppnishæfni hvert annars. Uppskerutíminn er fram undan Allt frá stofnun Landsvirkjunar var sýn manna sú að raforkuverðið yrði lágt í upphafi en myndi hækka þegar fram liðu stundir. Sá tími er runninn upp. Arðgreiðslur til íslensku þjóðarinnar vegna áranna 2021-2025 hafa numið samtals um 110 milljörðum króna, þökk sé farsælum endursamningum. Nú er hafið mikilvægasta endursamningaskeið í 60 ára sögu fyrirtækisins en í endursamningum felast bæði tækifæri og áskoranir. Hart er tekist á, enda eru þetta stærstu viðskiptasamningar sem gerðir eru hér á landi. Stærsti hlutinn snýr að Alcoa, sem notar þriðjung allrar raforku okkar. Markmið endursamninga er skýrt: raungera enn meiri verðmæti og fá hærra verð fyrir orkuna, íslensku þjóðinni til hagsbóta. Á ársfundi Landsvirkjunar á morgun, 3. mars, fjalla ég nánar um hvernig við ætlum að sækja fram á þessum krefjandi alþjóðamarkaði. Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar