Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2026 16:31 Viggó Kristjánsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson spila mögulega í sömu deild á næstu leiktíð. VÍSIR/VILHELM Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson gæti verið á leið til Þýskalands frá norska úrvalsdeildarfélaginu Kolstad sem átt hefur í miklum fjárhagserfiðleikum.
Þýski miðillinn Sport Bild segir að Sigvaldi sé orðaður við Gummersbach og Hannover Burgdorf, og því útlit fyrir að hann sé að fara að fá íslenskan þjálfara. Guðjón Valur Sigurðsson er aðalþjálfari Gummersbach sem er á gríðarlegri siglingu og skellti Kiel með mögnuðum hætti í gær, 34-26, eftir að hafa unnið seinni hálfleikinn 20-11. Gummersbach hefur unnið fimm síðustu leiki sína í röð og er í 6. sæti þýsku 1. deildarinnar, og eflaust spennandi kostur fyrir Sigvalda sem gæti orðið liðsfélagi Elliða Snæs Viðarssonar og Teits Arnar Einarssonar. Hinn kosturinn sem Sport Bild nefnir er Hannover Burgdorf, þar sem Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari. Félagið er á höttunum eftir hægri hornamanni í ljósi þess að fyrirliðinn Marius Steinhauser fer til Rhein-Neckar Löwen í sumar. Burgdorf er ekki langt á eftir Gummersbach en þó í 9. sæti. Eins og Sport Bild bendir á í grein sinni þá hefur Kolstad þurft að draga saman seglin eftir að hafa spennt bogann afar hátt og ætlað sér að verða stórlið í Evrópu. Félagið hefur greint frá ítrekuðum fjárhagserfiðleikum og þurft að láta launahæstu leikmenn sína fara, nú síðast til að mynda sænska markvörðinn Andreas Palicka sem fór til Wetzlar og fer svo til Füchse Berlín í sumar.
Þýski handboltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Kemur Snorri Steinn á óvart í landsliðsvali sínu? Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira