HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2026 13:13 Pape Abou Cisse spilaði fyrir Senegal á HM árið 2022. Getty/Clive Mason Það fór á endanum ekki svo að senegalski miðvörðurinn Pape Abou Cisse, sem meðal annars hefur skorað gegn Arsenal á sínum ferli, spilaði með Vestra í Lengjudeildinni í fótbolta í sumar.
Bikarmeistarar Vestra, sem keppa einnig í undankeppni Evrópudeildarinnar í sumar, tilkynntu í dag að Cisse væri farinn frá félaginu. Tilkynnt var um komu hans í nóvember en hann hefur nú óskað sjálfur eftir því að yfirgefa Vestra af persónulegum ástæðum, samkvæmt tilkynningu Vestra í dag. Hann náði því ekki að spila leik með liðinu á undirbúningstímabilinu. „Pape er frábær leikmaður og ekki síðri manneskja. Hann tók strax yfir sem leiðtogi í hópnum og verður mikil eftirsjá af honum. Við þökkum Pape fyrir gott samstarf og óskum honum velfarnaðar í næstu verkefnum,“ segir í tilkynningu Vestra. Cisse er þrítugur og á það meðal annars á ferilskránni að hafa spilað 16 A-landsleiki fyrir Senegal, og orðið Afríkumeistari með liðinu árið 2022, sama ár og hann fór á sjálft heimsmeistaramótið í Katar. Þá skoraði hann á Emirates-leikvanginum árið 2020 fyrir Olympiacos gegn Arsenal í Evrópudeildinni. Cisse fór frá gríska liðinu árið 2023 og lék með Adana Demirspor í Tyrklandi, og svo með Al Shamal í Katar á síðasta tímabili.
Vestri Lengjudeild karla Evrópudeild UEFA Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira