Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Agnar Már Másson skrifar 1. mars 2026 07:36 Það snjóaði allnokkuð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Mynd úr safni. Vísir/Anton Brink Þó að búast megi við snjókomu með köflum austanlands í dag, og jafnvel lítilsháttar éljum norðan til, verður að mestu bjart sunnan heiða. Aftur á móti eru frosttölur á bilinu 0 til 10 stig í kortunum víða um landið.
Þetta kemur fram í staðarspá Veðurstofu Íslands en þar segir að búast megi við norðurátt 8-15 m/s við suður- og austurströndina í dag, annars hægari vindi. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að norðlæg átt verði á landinu í dag, kaldi eða strekkingur við suður- og austurströndina, annars hægari vindur. Á morgun fari svo vaxandi lægð til norðurs fyrir austan land og það hvessi á austurhelmingi landsins. Samkvæmt nýjustu spám gangi í norðvestan hvassviðri eða storm á þeim slóðum auk þess sem búast megi við hríðarveðri um landið norðaustanvert. „Ef að líkum lætur verður því ekkert ferðaveður austantil á landinu á morgun,“ skrifar veðurfræðingur, „og seinnipartinn hvessir enn frekar á Austurlandi og Austfjörðum og þar er fólk hvatt til að huga að lausamunum.“ Á vesturhluta landsins verði vindur mun hægari en þurrt að mestu suðvestanlands. Á þriðjudag sé svo útlit fyrir ákveðna suðaustanátt með snjókomu, og síðar slyddu eða rigningu, sunnan- og vestantil á landinu.
Veður Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Sjá meira