„Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Hjörvar Ólafsson skrifar 28. febrúar 2026 21:51 Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, fagnar bikarmeistaratitlinum með lærisveinum sínum. Vísir/Anton Brink Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir það hafa verið skýrt markmið þegar hann tók við karlaliði félagsins í handbolta að koma liðinu aftur í fremstu röð og berjast um alla þá titla sem í boði eru. Það hafi verið tekið skýrt fram á fyrsta fundi hans með leikmönnum liðsins. „
Það er æðisleg tilfinning að vera búnir að landa þessum bikarmeistaratitli. Það er stór hluti af þessu liðið að vinna titil í meistaraflokki í fyrsta skipti á sínum. Við erum að brjóta hérna ís og binda endi á bikarþurrð hjá félaginu,“ sagði Gunnar sigurreifur að leik loknum en það eru 12 ár síðan Haukar urðu síðast bikarmeistarar og fimm ár síðan það varð deildarmeistari. „Ég fann fyrir miklu hungri í félaginu að vinna titla þegar ég tók við og það hungur var svo sannarlega áþreifanlegt í þessari bikarviku. Það eru ofboðslega margir í baklandi félagsins sem leggja hönd á plóg og sjá til þess að umgjörðin í kringum strákana sé til fyrirmyndar og það var frábært að spila fyrir framan fjölmarga stuðningsmenn Hauka hérna í kvöld,“ sagði hann enn fremur. „Við spiluðum frábæra vörn í þessum leik og Grétar Ari var stórkostlegur þar fyrir aftan. Við náðum svo að dreifa álaginu vel og það varð til þess að orkustigið var hátt allan leikinn. Við vorum sannfærðir um það að við ætluðum að ná í þennan bikar og mér fannst ég sjá það í leikmönnum liðsins allt frá upphafi til enda í þessum leik,“ sagði þessi reynslumikli þjálfari. „Við ræddum það á fyrsta fundi sem ég hélt með leikmönnum liðsins eftir að ég tók við stjórnartaumunum hjá liðinu að við ætluðum að setja stefnuna á að vinna alla þá titla sem í boði eru. Nú er bikarmeistaratitilinn í höfn og við fögnum því um helgina. Svo einbeitum við okkur að því að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að bæta hinum tveimur titlunum við í safnið í vor,“ sagði Gunnar. Bikarinn fer hér á loft og Gunnar Magnússon fagnar bikarmeistaratitlinum langþráða með leikönnum sínum. Vísir/Anton Brink
Powerade-bikarinn Haukar Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira