Samherji skoraði tvö hjá Hákoni í hádramatískum slag Sindri Sverrisson skrifar 28. febrúar 2026 17:05 Hákon Rafn Valdimarsson var bleikklæddur í dag. Getty/Clive Mason Hákon Rafn Valdimarsson stóð í marki Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, í fyrsta sinn í vetur, og fagnaði 4-3 sigri gegn Burnley. Hann gat lítið gert við mistökum samherja síns sem setti boltann tvisvar í eigið mark. Everton vann frábæran útisigur gegn Newcastle.
Hákon hefur varið mark Brentford í bikarleikjum í vetur en fékk nú fyrsta deildarleik sinn í vetur, vegna þess að Caoimhin Kelleher var upptekinn á fæðingardeildinni. 🇮🇸 The Iceman ready to go@IndeedUK | #BURBRE pic.twitter.com/N2C8FzQEPs— Brentford FC (@BrentfordFC) February 28, 2026 Lífið lék við Hákon og félaga framan af leiknum við Burnley því þeir komust í 3-0 á fyrstu 34 mínútunum, með mörkum frá Mikkel Damsgaard, Igor Thiago og Kevin Schade. Misstu niður þriggja marka forskot En þá var komið að miklum mistökum Michael Kayode, varnarmanns Brentford. Hann skoraði afar klaufalegt sjálfsmark rétt fyrir hálfleik og boltinn fór svo aftur af honum í markið í upphafi seinni hálfleiks, þó markið væri skráð á Jadion Anthony. Zian Flemming skoraði svo gott skallamark eftir frábæra fyrirgjöf Hannibal Mejbri á 60. mínútu og jafnaði metin. Hollendingurinn skoraði reyndar aftur á 80. mínútu en markið var á endanum dæmt af vegna afar naumrar rangstöðu. Þess í stað skoraði hinn danski Damsgaard sigurmark fyrir Brentford, á þriðju mínútu uppbótartíma, með skoti úr teignum. Burnley virtist reyndar hafa jafnað á síðustu sekúndum leiksins, þegar hinn 36 ára Ashley Barnes þrumaði í netið, en markið var á endanum, eftir ansi tímafreka skoðun, dæmt af vegna hendi. Brentford er því með 43 stig í 7. sæti, aðeins tveimur stigum á eftir Chelsea sem á leikinn við Arsenal á morgun til góða. Burnley er áfram næstneðst, með aðeins 19 stig. Rassamark skilaði Everton frábærum útisigri Everton kom sér svo í 8. sæti, stigi á eftir Brentford, með frábærum 3-2 útisigri gegn Newcastle. Jarrad Branthwaite skoraði fyrsta mark leiksins gegn Newcastle í dag.Getty/Michael Driver Jarrad Branthwaite skoraði fyrsta markið eftir hornspyrnu en Jacob Ramsey jafnaði metin á 32. mínútu. Beto kom Everton hins vegar yfir að nýju strax í kjölfarið og gestirnir voru enn yfir þegar tæpar tíu mínútur voru eftir. Þá skoraði Jacob Murphy hins vegar með föstu, viðstöðulausu skoti, sem reyndar fór af varnarmanni í netið, en aftur svaraði Everton með marki strax í kjölfarið þegar Thierno Barry rann á boltann eftir sendingu Kiernan Dewsbury-Hall og skoraði eiginlega með afturendanum.
Enski boltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Fleiri fréttir „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Sjá meira