10cc spilar á Íslandi í sumar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. febrúar 2026 11:54 Tónlistarmennirnir Rick Fenn, Keith Hayman, Graham Gouldman, Andy Park and Paul Burgess skipa 10cc. Hér eru þeir í Chicaco í september síðastliðnum. Getty Images/Barry Brecheisen Enska poppbandið 10cc treður upp í Eldborgarsal Hörpu þann 23. júní næstkomandi. Sveitin er frægust fyrir slagara á borð við I'm Not in Love, Dreadlock Holiday og The Things We Do For Love.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónleik ehf. sem kemur að tónleikum sveitarinnar hér á landi. Þar er sveitinni lýst sem einni þeirra áhrifamestu í poppinu. „Graham Gouldman og frábært tónleikaband hans stíga á svið í Eldborgarsal Hörpu. Sveitin hefur áratugum saman skipað sér sess meðal merkustu nafna poppsins og tónlist hennar heldur áfram að höfða til nýrra kynslóða.“ Meðal helstu laga sveitarinnar má nefna I’m Not In Love, Dreadlock Holiday, Rubber Bullets, Good Morning Judge, Donna, Wall Street Shuffle og The Things We Do For Love sem hafa gengið í gegnum endurnýjun lífdaga í kvikmyndum og þáttum á borð við Guardians of the Galaxy, After Life, Bridget Jones, Snatch og The Social Network. „Endurnýjaðar vinsældir sveitarinnar hafa þýtt uppselda tónleika víða um heim, þar á meðal í hinu goðsagnakennda Royal Albert Hall í London fyrr á árinu. Þar steig Kevin Godley óvænt á svið og söng í fyrsta sinn lagið ”Cry” með sveitinni á tónleikum,“ segir í tilkynningunni. Godley var einn af stofnendum sveitarinnar árið 1972. Graham Gouldman, stofnandi, bassaleikari, gítarleikari og söngvari, hefur stýrt 10cc frá upphafi en núverandi skipan byggir á traustum grunni úr sögu sveitarinnar. Gítarleikarinn Rick Fenn hefur verið hluti af 10cc-fjölskyldunni síðan á áttunda áratugnum, en Keith Hayman, Iain Hornal og Ben Stone fullkomna hópinn. Fjórtán ár frá síðustu heimsókn Hljómsveitin kom hingað til lands árið 2012 og tróð upp í Háskólabíói. Egill Helgason fjölmiðlamaður var á meðal tónleikagesti og skrifaði umfjöllun um tónleikana í DV. „Maður vissi ekki hverju maður átti von á á tónleikunum í Háskólabíói í gærkvöldi, en þeim mun meiri var gleðin þegar þeir reyndust vera frábær upplifun.“ Gouldman er á áttugasta aldursári en Egill snerti einmitt á aldri forsprakkans í gagnrýni sinni. „Graham Gouldman er varla kominn á grafarbakkann. Hann er fæddur 1946. Á tónleikunum í gær fékk maður yfirlit yfir feril þessa flotta tónlistarmanns. Það voru reyndar flutt fleiri lög en úr fórum 10CC – ég vissi ekki að hann væri höfundur laga eins og No Milk Today sem Herman´s Hermits fluttu, Bus Stop og For Your Love sem urðu fræg með Hollies og For Your Love sem var stærsti smellur The Yardbirds.“
Tónleikar á Íslandi Harpa Tónlist Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira