Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Atli Ísleifsson skrifar 26. febrúar 2026 07:13 Hiti á landinu verður á bilinu eitt til sex stig. Vísir/Vilhelm Fram eftir degi í dag verður suðaustlæg átt með vætu um sunnanvert landið. Töluverð hláka er á höfuðborgarsvæðinu og má búast við hálkublettum hér og þar auk þess sem pollar hafa myndast víða.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði norðanátt með snjókomu víða á Vestfjörðum og líklega slydda á Breiðafirði. Gul viðvörun er nú í gangi á Vestfjörðum og verður fram á kvöld en þar er norðvestanhríð, allt að átján metrar á sekúndu og snjókoma eða skafrenningur. Skyggni er þá mjög lítið á köflum og akstursskilyrði varasöm. Samskonar viðvörun tekur svo gildi á Breiðafirði klukkan ellefu og stendur einnig fram á kvöld. Á Norður- og Austurlandi verður fremur rólegt veður. Hiti á landinu verður á bilinu eitt til sex stig. „Undir hádegi kemur lægð inná Faxaflóa og í kjölfarið snýst til norðvestanáttar vestantil á landinu og kólnar allhratt. Skilin sem fylgja lægðinni eru ansi skörp svo fólk ætti að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð því það munu verða snarar breytingar. Í kvöld verður svo kominn strekkings suðvestanátt með éljum um landið vestanvert, úrkomubakki mun á sama tíma liggja fyrir norðausturlandi og allhvöss vestanátt en víða þurrt annars staðar, þótt sums staðar verði strekkings vindur. Frost um allt land. Á morgun verður svo komin suðvestanátt um allt land. Bjart veður fyrir norðaustan og austan en él í öðrum landshlutum. Síðan er að sjá að dragi úr vindi og éljum en áfram fremur kalt um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Töluverð hláka Töluverð hláka er nú á höfuðborgarsvæðinu og má búast við hálkublettum hér og þar auk þess sem pollar hafa myndast víða. Að sögn slökkviliðsins hafa þó engar tilkynningar borist vegna vatnsleka í nótt inn á borð þeirra. Gul viðvörun er nú í gangi á Vestfjörðum og verður fram á kvöld en þar er norðvestanhríð, allt að átján metrar á sekúndu og snjókoma eða skafrenningur. Skyggni er þá mjög lítið á köflum og akstursskilyrði varasöm. Samskonar viðvörun tekur svo gildi á Breiðafirði klukkan ellefu og stendur einnig fram á kvöld. Á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar er nú hálka og éljagangur á Hellisheiði en snjóþekja í Þrengslum og Hálka eða snjóþekja á mörgum öðrum leiðum á Suðvesturlandi. Á Vesturlandi er síðan orðið mjög hvasst undir Hafnafjalli. Þungfært er á Fróðárheiði og Vatnaleið en þæfingur á Holtavörðuheiði. Ófært er á Bröttubrekku. Og á Norðurlandi er svo Þungfært á Vatnsskarði en þæfingsfærð á leiðum í kringum Sauðárkrók. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vestan 8-15 m/s og él eða snjókoma, en úrkomuminna síðdegis og léttir til á austanverðu landinu. Frost 1 til 9 stig, minnst syðst. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir hæga vestlæga eða breytileg átt, dálítil él á víð og dreif og talsvert frost, einkum inn til landsins. Á mánudag: Norðlæg átt og snjókoma um tíma austast, annars úrkomulítið. Áfram kalt í veðri. Á þriðjudag: Gengur líklega í hvassa suðaustanátt með snjókomu eða slyddu, síðar rigningu og hlýnandi veður, en lengst af þurrt norðaustantil. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestanátt með éljum um landið vestanvert. Vægt frost um mest allt land.
Veður Færð á vegum Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira