Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2026 07:13 Frost verður um allt land í dag, á bilinu 1 til 7 stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir suðvestan- og sunnanátt á landinu í dag og má víða reikna með vindhraði verði á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu. Þó ber að taka fram að vindhraða verður nokkuð misskipt í dag, bæði milli landshluta og einnig breytilegur með tíma innan sama landsvæðis.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að á austanverðu landinu séu horfur á þurru og björtu veðri. „Annars staðar nú í morgunsárið eru víða él, en um og eftir hádegi er gert ráð fyrir að úrkomusvæði með snjókomu fari yfir vesturhelming landsins frá suðri til norðurs. Snjókoman innan þessa úrkomusvæðis er misjafnlega áköf, en það getur snjóað talsvert um tíma þar sem „best lætur“. Frost um allt land í dag, á bilinu 1 til 7 stig. Í kvöld skiptir yfir í skúri eða él sunnanlands og hlýnar heldur. Á morgun er síðan suðaustan 8-15 og rigning eða slydda með köflum í kortunum sunnanlands, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 0 til 6 stig. Við vesturströndina á morgun verður skarpur skilabakki og gert er ráð fyrir að hann gangi inn á vestanvert landið seinnipartinn með norðvestan 10-18, snjókomu og ört kólnandi veðri. Það er síðan vestlæg átt í vændum á föstudag. Él eða snjókoma víða um land framan af degi, en eftir hádegi ætti að hafa létt til norðaustan- og austanlands. Frost um allt land, yfirleitt á bilinu 2 til 7 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustan 8-15 m/s og rigning eða slydda með köflum, einkum sunnanlands. Hiti 0 til 6 stig. Gengur í norðvestan 10-18 með snjókomu og frosti á vestanverðu landinu síðdegis. Á föstudag: Vestan 8-15 og él eða snjókoma, en léttir til á austanverðu landinu eftir hádegi. Frost 2 til 9 stig. Á laugardag: Austlæg átt og slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt norðanlands fram undir kvöld. Hlýnar heldur. Á sunnudag: Breytileg átt og líkur á éljum í flestum landshlutum. Hiti um og undir frostmarki. Á mánudag: Norðlæg átt með slyddu eða snjókomu austanlands, éljum norðantil, en þurrt að mestu sunnan heiða. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu, slyddu eða snjókomu, einkum á sunnanverðu landinu.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira